
Fastus hefur einnig upp á að bjóða mikið úrval af borðbúnaði. „Þar eru fremst í flokki glös frá Arc International en það er stærsti framleiðandi glasa í heimi með um 50 prósent markaðshlutdeild," segir Jóhannes og nefnir að Fastus sé einnig með postulín frá framleiðendum eins og RAK og Figgjo.
Starfsmenn Fastus hafa víðtæka reynslu úr hinum ýmsu geirum. Jóhannes nefnir sérstaklega að hjá Fastus starfi matreiðslumeistarar með áralanga reynslu af matreiðslu. „Það kemur sér mjög vel þegar viðskiptavinirþurfa á ráðgjöf að halda," upplýsir hann og bætir við að hjá fyrirtækinu starfi einnig tæknimenntaðir sölumenn sem viðskiptavinir kunni mjög vel að meta.
Viðskiptavinir Fastus eru margvíslegir og Jóhannes nefnir nokkra þeirra: „Þeir eru allt frá skipaútgerðum og þvottahúsum til bakaría og matvælaframleiðenda," segir Jóhannes en Fastus hefur einnig þjónað þörfum ísbúðaeigenda með vélum frá Taylor sem hafa verið á íslenskum markaði í áratugi.

Jóhannes er beðinn um að nefna nokkur þeirra verkefna sem Fastus hefur unnið að undanfarið. „Þar má nefna tvö eldhús í Hörpunni og svo höfum við unnið að eldhúsum í nýjum veitingahúsum á borð við Grillmarkaðinn, Sjávargrillið, Happ, Mann lifandi, Uno og fleiri," telur Jóhannes upp og því greinilegt að reyndir matreiðslumenn kunna að meta þjónustu Fastus.
Jóhannes bendir á að stór hluti af starfsemi Fastus þjóni þörfum heilbrigðisgeirans. „Til þess að mæta þörfunum sem best höfum við á okkar snærum hjúkrunarfræðinga, líffræðinga og iðjuþjálfa," upplýsir hann og því ljóst að fagmennskan er í fyrirrúmi hjá Fastus.
Nánari upplýsingar má nálgast á fastus.is.