
Berjumst fyrir bókina!
Böndin bárust fljótt að bókinni – eða réttara sagt að fjarveru bókarinnar. Fjarveru bókarinnar úr lífi alltof margra ungmenna nútímans.
2.Á þessu herrans ári 2011 hafa tvær kannanir verið kynntar, hverra niðurstöður vöktu illu heilli minni athygli og viðbrögð en efni stóðu til. Ég tel brýnt að vekja athygli á þeim hér því að þær flytja váleg tíðindi fyrir alla þá sem vilja veg bókarinnar sem mestan. Í raun alveg skelfileg tíðindi. Önnur er könnun sem menntamálaráðuneytið stóð fyrir í febrúar síðastliðnum og leiddi í ljós að hátt í fjórðungur nemenda í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla les engar aðrar bækur en skólabækur. Til samanburðar má geta þess að árið 1968 lásu 11% barna á aldrinum 10-15 ára aldrei bækur sér til ánægju, þannig að fjöldi bóklausra barna hefur rösklega tvöfaldast á tímabilinu.
Ástandið er enn verra hjá eldri krökkum. Í rannsókninni „Ungt fólk 2010“, sem gerð var í öllum framhaldsskólum landsins haustið 2010, voru ítarlegir spurningalistar lagðir fyrir rúmlega ellefu þúsund ungmenni. Rannsóknin leiddi í ljós að lestur er á hröðu undanhaldi hjá framhaldsskólanemum. Þeim hefur fjölgað verulega sem verja ekki neinum tíma í bóklestur utan skóla. Í samskonar könnun árið 2007 sögðust 33,5% stráka ekki eyða neinum tíma í bóklestur, nú er þessi tala komin í 45,4%.
Semsagt, á aðeins þremur árum hefur framhaldsskólastrákum sem lesa bækur sér til yndis og afþreyingar fækkað um heil 12 prósentustig. Hlutfallslega aukningin er hins vegar 35% – strákum á þessum aldri sem aldrei lesa bók hefur fjölgaði um ríflega þriðjung á þremur árum! Sama þróun er hjá framhaldsskólastúlkum. Árið 2007 litu tæp 26% framhaldsskólastelpna aldrei í aðrar bækur en skólabækur en í fyrra var þetta hlutfall komið í rúm 40%. Það er að segja; kvenkyns lesendum á þessum aldri fækkaði um 14 prósentustig á þriggja ára tímabili. Hlutfallslega aukningin er hins vegar 55%. Ég endurtek: stelpum á þessum aldri sem aldrei lesa bók utan skóla fjölgaði um 55% á aðeins þremur árum! Þetta er grafalvarleg þróun og hraði hennar vægast sagt hrollvekjandi. Ef bókin væri dýr væri hún sett á lista dýra í útrýmingarhættu.
3.Rannsókn sem Brynhildur Þórarinsdóttir og Þóroddur Bjarnason kynntu í fyrra og gerð var á meðal 15-16 ára nema fyrir fáeinum misserum leiddi meðal annars í ljós þá staðreynd að aukin menntun foreldra jók líkur á bóklestri barnanna, en – og hér rekur mann í rogastans – því ríkara sem heimilið var, því minni líkur voru á því að barnið læsi, óháð menntun foreldranna. Með öðrum orðum: „Börn efnaðra foreldra eru ólíklegri til að lesa bækur daglega, jafnvel þótt foreldrarnir séu menntaðir ... Þessu eru þveröfugt farið í Evrópu þar sem bættur efnahagur skilar sér í auknum lestraráhuga.“
Of mikil veraldleg gæði, of mikið af peningum, of mikið af tækjum og græjum og munaði, of mikið af öllu – já, ofgnóttin dregur sem sagt úr líkum á að barnið sökkvi sér í hinn óefnislega heim bókanna. Það er ömurleg þróun ef veraldlegar allsnægtir leiða til bóklegrar fátæktar.
4.Líkurnar á því að ungmenni sem les aldrei bækur verði virkur lesandi þegar árin líða eru hverfandi. Og það sem meira er; fólk sem hefur aldrei notið bóka er ólíklegt til að hvetja eigin börn til að lesa. Þannig getur bóklausum fækkað ár frá ári, áratug eftir áratug, kynslóð eftir kynslóð. Að lokum sitja örfáir útgefendur og rithöfundar með hendur í skauti eða eru að sinna svo þröngum hópi fólks að það nægir engum til viðurværis. Bókin visnar og deyr – því að það verða engir lesendur eftir til að vökva hana með augum sínum.
5.Hvað ber okkur að gera? Jú, við verðum að efla bóklestur á Íslandi frá upphafi skólagöngu. Með öllum ráðum. Allir dagar verða að vera dagur bókarinnar. Til dæmis má hugsa sér að á hverjum degi yrði ein kennslustund frá byrjun grunnskóla til loka framhaldskóla helguð yndislestri, þar sem krakkarnir læsu bók að eigin vali, hvort sem það væru unglingabækur eða Íslendingasögur, klassískar skáldsögur eða nútímaverk, reyfarar eða rómantík, nú eða ljóðabækur. Ekki bækur sem aðrir velja fyrir þau, ekki fyrir próf – bara til að opna fyrir þeim nýja veröld; heim orðsins, vídd skáldskaparins.
Ef krakkar og unglingar læra ekki að meta töfra bókarinnar frá fyrstu tíð mun bókin deyja út, hún verður aflóga risaeðla, flöktandi skuggi. Og þá er ég ekki eingöngu að tala um hina hefðbundnu pappírsskruddu heldur líka raf- og hljóðbækur – því að þetta hrap í lestri snýst ekki um á hvaða formi skáldskap er komið til skila, hrapið snýr að sjálfum skáldskapnum, innihaldinu en ekki umbúðunum.
Ég legg til að skapaður verði samráðsvettvangur fulltrúa ríkis og borgar, sveitarfélaga, skóla, útgefenda og rithöfunda, þar sem lagðar verða línur fyrir allsherjar átak í þágu lestrar og bóka. Þetta er stríð í þágu menningar okkar, í þágu framtíðar. Og umfram allt verða heimilin í landinu að sýna bókinni hollustu.
Njótum bóka og kennum börnunum okkar að meta töfraveröld þeirra. Galdur bókarinnar má ekki glatast. Berjumst fyrir bókina!
Skoðun

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar