
Ný náttúruverndarólög
Staðreyndin er hinsvegar sú að utanvegaakstur er alls ekki stórt vandamál þó almenningi sé reynt að telja trú um það. Meira að segja Umhverfisráðuneytið sjálft hefur sagt að dregið hafi úr utanvegaakstri (http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1700) og það án kortagrunns. Í ljósi þessa og þess að unnið er að heildarendurskoðun náttúruverndarlaganna (Hvítbók), hversvegna liggur þá svona á að leggja þetta frumvarp fram?. Það hefur verið viðurkennt að það geti tekið um áratug að kortleggja leiðir á landinu. Hvað liggur þá á? Getur verið að umhverfisráðherran sé vísvitandi að leggja þetta frumvarp fram gegn þeim frjálsu ferðamönnum sem hafa gagnrýnt hana í þessum málum?
Hverjar verða afleiðingar þess að hafa kortagrunn um akstursleiðir á landinu? Ég sé fyrir mér nokkrar:
l Ekki er endilega víst að fleiri verði teknir við akstur utan vega, því ekki er nóg að búa til kortagrunn til að fleiri verði „gómaðir“.
l Ekki er líklegt að dragi úr utanvegaakstri vegna kortagrunns, því það verða alltaf til svartir sauðir sem hafa neikvæðan ásetning í þessum efnum. Það eru líka til húsmæður sem stunda búðarhnupl og afar sem stunda ofsaakstur, sama hversu ströng löggjöfin er.
l Kortagrunnurinn mun aldrei innihalda allar akstursleiðir á landinu, en það veldur leiðinlegum hliðarverkunum.
l Akstur um fáfarnar leiðir sem fólk hefur notað að sínum uppáhaldsstöðum gæti verið flokkaður sem utanvegaakstur. Afi og amma gætu því verið gómuð fyrir utanvegaakstur þegar þau fara til berja á leynistaðinn sinn að hausti. Þau eru nú samt á vegslóða, en hann er bara ekki í kortagrunninum og flokkast því sem utanvegaakstur. Pabbi og mamma gætu jafnframt verið tekin og sektuð fyrir utanvegaakstur þegar þau aka að sínu leyni-tjaldstæði að sumrinu. Breytir þá engu að afi, amma, pabbi og mamma hafa ferðast árum saman á þessa staði, án þess að nokkuð sjái á landinu, annað en ógreinileg slóð. Þetta gæti leitt til þess að fleiri verði sektaðir vegna utanvegaaksturs – viljum við hafa það svoleiðis ?
l Leiðir sem hafa lítið verið farnar og þannig verndaðar, verða allt í einu öllum þekktar á korti og hætta á að umferð aukist með tilheyrandi raski og óþarfa tjóni á náttúrunni.
Hvað er þá til ráða í því að útrýma skemmdum sem verða á náttúru vegna umferðar utan vega? Jú það eru nokkur atriði sem liggja beint við, hægt að fara í strax og nýta í það hluta þeirra fjármuna sem eiga að að fara í gerð kortagrunns:
l Fræðsla, fræðsla og fræðsla
l Aukin fræðsla til erlendra ferðamanna sem eru að koma til landsins
l Aukin fræðsla til Íslendinga sjálfra í gegnum skólakerfið, ökukennslu, Landsbjörgu, fjölmiðla o.s.frv.
l Stuðningur við félagasamtök sem hafa á stefnuskrá sinni að berjast gegn slíkum skemmdum.
Viljum við búa í samfélagi þar sem allt er bannað, nema það sem sérstaklega er leyft? Eða viljum við búa í samfélagi þar sem frelsi ríkir, virðing er fyrir náttúrunni og náunganum og fólk er upplýst um hvernig best er að haga sínum ferðum til að afkomendur okkar fái einnig notið þess á sambærilegan hátt um ókomnar aldir?
Ég skora á alþingismenn að hafa vit fyrir umhverfisráðherranum og fella þetta frumvarp.
Skoðun

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar