Forstjóri Haga, sem er stærsta verslanafyrirtæki á Íslandi, segir að neytendur séu afgangsstærð í íslenskum stjórnmálum og enginn beri hagsmuni þeirra fyrir brjósti. Forystumenn í verslun og þjónustu tali fyrir daufum eyrum og stjórnmálamenn verndi sérhagsmuni á kostnað heimilanna.
Um nokkra hríð hafa Samtök verslunar og þjónustu staðið í deilum við stjórnvöld vegna ólögmætrar tollálagningar á aðfluttar landbúnaðarafurðir. Samtökin telja að þegar Jón Bjarnason hafi tekið við embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi tollar hækkað upp úr öllu valdi, Jón hafi sett á ólöglega verðtolla í stað magntolla sem hafi leitt til þess að stórlega hafi dregið úr innflutningi.
Fram kemur í skráningarlýsingu Haga í Kauphöll að vegna takmarkana á innflutningi og hárrar skattlagningar á innfluttar landbúnaðarafurðir sé staða þeirra birgja sem sjá Högum fyrir landbúnaðarvörum sérlega sterk, en innlendar landbúnaðarvörur eru um 40-45 prósent af matarkörfu heimilanna.
Finnur Árnason, forstjóri Haga, var gestur okkar í nýjasta þættinum af Klinkinu. Finnur sagði kjötverðshækkanir undanfarin misseri væru vegna hárra tolla á innfluttar afurðir, en þessar hækkanir væru langt umfram það sem eðlilegt gæti talist.
„Það er alveg ljóst að í þessari umræðu sem kom fram um kjötverð, við settum fram dæmi sem sýndi að hækkanir á kjöti hækkaðu skuldir heimilanna vegna þess að þetta hefur áhrif á verðtryggingu og margt annað. Það var enginn þingmaður sem hafði nokkurn áhuga á þessu máli. Það er alveg ljóst að þegar horft er á neytendur, það eru ekki margir sem vilja taka upp þeirra málstað," segir Finnur.
Finnur segist sannfærður um að ef frjálsræði yrði aukið í verslun með kjötvörur myndi það styrkja innlendan landbúnað, rétt eins og gerðist hjá grænmetisbændum. Finnur segist hins vegar ekki sjá nokkra stefnubreytingu í þessum efnum. Engir stjórnmálamenn taki upp hanskann fyrir neytendur.
„Þeir eru afgangsstærð. Við bendum á þessa hluti ítrekað en tölum fyrir daufum eyrum. Það er mjög einfalt."
Það eru sérhagsmunirnir sem ráða? „Já, það er verið að vernda sérhagsmuni og það er gert á kostnað heimilanna."
Viðtalið við Finn í heild sinni í nýjasta þættinum af Klinkinu má nú finna á viðskiptavef Vísis.
Forstjóri Haga: Enginn á þingi ber hagsmuni neytenda fyrir brjósti
Þorbjörn Þórðarson skrifar
Mest lesið

Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye
Viðskipti innlent

Arctic Adventures kaupir Happy Campers
Viðskipti innlent

Trump-tollar tóku gildi í nótt
Viðskipti erlent

Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið
Viðskipti innlent

Enn ein eldrauð opnun
Viðskipti innlent

Ísland brotlegt í pítsaostamálinu
Viðskipti innlent


Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike
Viðskipti innlent

ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins
Viðskipti innlent

Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist
Viðskipti innlent