Matur

Lúxus hafragrautur - Bestur á morgnana eða milli mála

„Hafragrauturinn er mitt uppáhald og er fastur liður á nánast hverjum degi," segir Elísabet Margeirsdóttir, löggiltur næringarfræðingur og veðurfréttakona.

„Ég fæ mér hafragrautinn yfirleitt í morgunmat en finnst líka gott að gera auka skammt af grautnum til hafa með mér í nesti í vinnuna. Grauturinn er nefnilega fínn kaldur og hentugt að fá sér hann sem millimáltíð seinni partinn eða nota hann í léttri máltíð.“

Lúxus hafragrautur fyrir tvo:

-2 dl tröllahafrar

-6 dl vatn

-2 tsk chia fræ 

-Smá salt 

-Kanill eftir smekk 

Hafrar, chia fræ og vatn sett saman í pott. Stillið á hæsta hita og bíðið eftir að suðan kemur upp.

Slökkvið næst undir og byrjið að hræra í grautnum. 

Stundum er gott að taka pottinn af hellunni og lengja þannig eldunartímann ef þið eruð t.d. að hella upp á kaffi í leiðinni.

Hrærið í grautnum þar til hafrarnir og fræin hafa tekið mest allt vatnið í sig. 

Chia fræin eru mjög næringarrík og gefa grautnum skemmtilega og góða áferð. Kryddið grautinn með kanil eftir smekk og skiptið honum í tvær skálar eða nestisbox.

Gott er að setja ofan á grautinn:

- Hálfan bolla af hreinu skyri eða jógúrt

- 1/2 bolla af 1-2 tegundum af ávöxtum (t.d. banana, epli, peru eða ber)

- 1 msk sykurlaust múslí 

- 1 msk hnetur (t.d. pecan, valhnetur eða möndlur) gróft saxaðar 

- 2 döðlur smátt skornar eða annan þurrkaðan ávöxt

- 1 tsk hreint hnetusmjör








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.