Veiðitölur LV: Litlu árnar að gefa flotta veiði Svavar Hávarðsson skrifar 23. ágúst 2012 11:31 Miðá í Dölum hefur þegar skilað hærri tölum en í fyrra. Eins og myndin sýnir eru margir fallegir veiðistaðir í Miðá, en hún er viðkvæm fyrir þurrkum og oft vatnslítil. Því er haustið oft drjúgt, svo gaman verður að sjá lokatölurnar. Mynd/Svavar
Ytri-Rangá og vesturbakki Hólsár er áfram gjöfulusta laxveiðisvæðið, samkvæmt nýjustu tölum Landssambands veiðifélaga með 2.588 laxa veidda. Vikuveiðin á svæðinu er 351 lax og telja Lax-ármenn líkur á því að áin nái 5.000 laxa veiði í sumar, en tölurnar úr ánni hafa undanfarin ár verið tvöfalt hærri en veiðin á þessum tíma sumars. Eystri-Rangá kemur á hæla systur sinnar með 2.064 laxa. Kannski er fullsnemmt að lesa í spilin en fátt virðist ætla að koma í veg fyrir að Ytri-Rangá gefi mesta heildarveiði þetta sumarið, eins og í fyrra. Selá í Vopnafirði er áfram að skila góðum tölum, en um 80 laxar veiddust þar í vikunni. Selá er komin í 1.181 laxa. Hofsá í Vopnafirði er komin í 742 laxa á sínar 10 stangir og Vesturdalsá 118 laxa á sínar þrjár stangir. Góður gangur er í Miðfjarðará sem er komin í 1.112 laxa og skilaði rúmlega 140 löxum í vikunni. Haffjarðará hefur náð upp veiði aftur eftir flóðin og nálgast þúsund laxana hratt. Blanda er komin á yfirfall. Sex laxar veiddust þar í vikunni og heildarveiðin aðeins 829 laxar. Rúmlega þúsund löxum meiri veiði var í Blöndu á sama tíma í fyrra en þá fór áin mun seinna á yfirfall sem munar auðvitað öllu í þessari frábæru á. Norðurá, þrátt fyrir gott vatn, er ekki að ná sér neitt á strik. Enn eina vikuna er vikuveiðin þetta um 30 fiskar. Þó segja sögur að mikið sé af laxi, sérstaklega ofarlega í ánni svo engin ástæða er til annars en að gera ráð fyrir rúmlega þúsund laxa veiði í sumar, andsk... hafi það. Af öðrum tölum má nefna Elliðaárnar í 744 löxum, en vikuveiðin var aðeins átta laxar á þeim bænum. Það er reyndar á færri stengur en lungan úr sumrinu, en fækkað hefur verið úr sex í fjórar stangir. Laxá í Kjós hefur gefið 360 laxa og Aðaldalurinn hefur gefið 354. Þar veiddust 23 í vikunni, svipað og undangengnar vikur. Þar spáir hins vegar kólnandi veðri sem gæti orðið veiðimönnum drjúgur liðsauki. Minna slý og svalara vatn með smá úrkomu. Fimm smáár á Vestur- og Suðurlandi verðskulda nokkrar línur. Miðá í Dölum hefur skilað betri veiði en allt sumarið í fyrra. Þar hafa veiðst 294 laxar eða 79 betur en í fyrra. Affallið í Landeyjum er á fínum gangi með um 60 laxa veiði viku eftir viku og stendur í 300 löxum. Þá hefur Búðardalsá gefið 241 lax á sínar tvær stangir. Þver á í Fljótshlíð er að gefa ágætlega þrátt fyrir misjafna ástundun. Dunká er líka að gefa vel, segja síðustu fréttir. Vatnsdalsá hefur gefið 246 laxa; Víðidalsá 225. Breiðdalsá hefur gefið 220 en þar veiðist aðallega lúsugur stórlax, eins og rafræn veiðibók árinnar segir manni. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru og geta áhugasamir sjálfir rýnt í tölurnar á vef Landssambands veiðifélaga - angling.is. [email protected]
Stangveiði Mest lesið 112 sentimetra stórlax úr Vatnsdalsá Veiði Gæsaveiðin gengur vel um allt land Veiði Breyta veiðireglum vegna urriðadráps Veiði Ertu eiginkona veiðimanns? Veiði Fyrsti laxinn kominn úr Eystri Rangá Veiði Framleiða sjónvarpsþætti um sportveiði Veiði Villingavatnsárós opnar á laugardag Veiði Laxá í Kjós gaf 137 laxa í liðinni viku Veiði Veiðin fer vel af stað í Hlíðarvatni Veiði Veiðimyndakeppni flugunnar Zeldu í gangi Veiði