Matur

Ómótstæðilegir lakkrístoppar

Kristín Ruth gefur Lífinu lakkrístoppauppskrift.
Kristín Ruth gefur Lífinu lakkrístoppauppskrift. Mynd/Gassi

„Fyrir jólin baka ég alltaf lakkrístoppa með mömmu - alveg ómissandi partur af jólaundirbúningnum," segir Kristín Ruth Jónsdóttir, háskólanemi og útvarpskona, sem gefur okkur uppskrift að lakkrístoppum úr Stóru köku- & brauðbók Disney.

Uppskriftin

3 eggjahvítur

200 g púðursykur

150 g rjómasúkkulaði

250-300 g súkkulaðihúðað lakkrískur

Aðferðin

Hitið ofninn í 175 gráður.

Stífþeytið eggjahvítur og bætið sykri smátt og smátt saman við. Þeytið áfram á mesta hraða þar til sykurinn er alveg uppleystur.

Saxið súkkulaðið og lakkrískurlið smátt. Bætið varlega út í eggjahvítuna með sleif. Setjið með teskeið á pappírsklædda bökunarplötu og bakið í 12-14 mínútur.

Edda.is








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.