Stofnun ríkisolíufélags Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar 14. mars 2012 06:00 Norðmenn ráða yfir gríðarmiklum olíu- og gasauðlindum. Engu að síður sáu Norðmenn ástæðu til að fagna í nóvember síðastliðnum þegar birtar voru niðurstöður olíu- og gasrannsókna á Jan Mayen hryggnum. Olíumálastofnun Noregs, sem kippir sér ekki upp við hvað sem er, gaf út tilkynningu um óvæntar og spennandi niðurstöður. Nýlega upplýsti svo Orkustofnun að rannsóknir olíuleitarfélaganna TGS og VBPR hefðu staðfest að olíu væri að finna á Drekasvæðinu. Það eru góðar vonir um að olía eða gas séu þar í vinnanlegu magni. Eins og Stöð 2 greindi frá á sínum tíma telur Terje Hagevang, helsti sérfræðingur Norðmanna um Jan Mayen hrygginn, að þar sé að finna álíka verðmæti í olíu og gasi og finnast í Noregshafi. Norðmenn hafa þegar leigt borskip til að framkvæma rannsóknarboranir við Jan Mayen þarnæsta sumar en samkvæmt rannsóknum Sagex olíufélagsins frá 2006 er megnið af þeim svæðum sem líklegust eru til að geyma olíu- og gaslindir innan íslenskrar lögsögu. Kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. En ef þetta gefur Íslendingum ekki tilefni til að vera bjartsýnir er slíkt tilefni vandfundið. AðstæðurMargt hefur breyst frá því að fyrst kviknuðu vonir um að olía og gas kynnu að leynast á Drekasvæðinu. Eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega. Nú er því hafin nýting á olíulindum sem áður töldust ekki hagkvæmar. Tækniframfarir á undanförnum árum hafa auk þess gert olíuvinnslu á miklu dýpi mun vænlegri en áður. Samkvæmt útboðslýsingu Orkustofnunar vegna olíuleitar á Drekasvæðinu er hafdýpi yfir áhugaverðum leitarsvæðum yfirleitt á bilinu 1.000 til 1.500 metrar (Sagex 2006). Slíkt dýpi er ekki vandamál. Það þyrfti að nota fljótandi borpall en botnfastir borpallar teljast hvort eð er ekki hagkvæmir ef dýpi fer mikið yfir 120 metra. Fljótandi borpallar eru því algengir. Þeir hafa auk þess þann kost að vera færanlegir. Fimmta kynslóð færanlegra flotpalla, sem varð til árið 1998, nýtist til borunar á yfir 2.500 metra dýpi og sjötta kynslóð er hönnuð fyrir meira en 3.000 metra dýpi. Borskip geta svo borað á allt að 3.700 metra dýpi. Hafdýpi segir auk þess ekki alla söguna. Við samanburð á borholum er litið til þess hversu langt er niður að lindinni. Í því sambandi er dýpið á Drekasvæðinu minna en víða annars staðar. Og þótt veður geti verið válynd suður af Jan Mayen eru aðstæður víða miklum mun verri. Á Norðursjó er veðurfar mjög erfitt. Raunar er ölduhæð á Drekasvæðinu almennt mun minni en við Noreg og á Mexíkóflóa ganga reglulega yfir gríðarlega öflugir fellibyljir. Þar eru yfir 4.000 borpallar. Hvenær?Norðmenn boruðu fyrst eftir olíu sumarið 1966 án árangurs. Sumarið 1969 fannst svo risaolíulind sem hlaut nafnið Ekofisk. 1971 var farið að dæla olíu beint í skip og tveimur árum síðar, þegar búið var að koma upp olíugeymi, skilaði lindin stórum hluta gjaldeyristekna landsins. Frá 1969 hafa orðið gríðarlegar framfarir við leit og vinnslu. Jarðlög eru kortlögð með tvívíðum, þrívíðum og fjórvíðum hljóðbylgjumælingum. Nú er hægt að leigja borpalla á borð við Eirík rauða og Leif Eiríksson sem sigla um allan heim og gata hafsbotninn á allt að 3.000 metra dýpi. Hinn víðförli Leifur hefur á undanförnum árum m.a. borað við Noreg, Angóla, Tyrkland og Grænland. E.t.v. er tímabært að Leifur skili sér heim til Íslands. Þótt fyrr hefði veriðRannsóknir TGS og VBPR, sem getið var um í upphafi, voru unnar að frumkvæði fyrirtækjanna sjálfra en vísindamennirnir voru á leið til Grænlands og fengu leyfi til að kanna Drekann í leiðinni. Orkustofnun bendir á að hinar jákvæðu niðurstöður berist seint fyrir útboð sérleyfa sem nú stendur yfir og lýkur 2. apríl. Það er áhyggjuefni að stjórnvöld skuli ekki hafa undirbúið útboðið með því að láta vinna rannsóknir í tæka tíð. Fyrir tveimur árum fór ég í fundaferð um landið og benti á mikilvægi þess að ráðast í slíkar rannsóknir sem fyrst. Hvernig sem útboðið á Drekasvæðinu fer er mikilvægt að Orkustofnun fái öflugan stuðning og hvatningu stjórnvalda vegna olíuleitar. RíkisolíufélagStofnun ríkisolíufélags hefði ýmsa kosti. Halldór Þorkelsson sérfræðingur hjá PWC hefur bent á að stofnun slíks félags sé til þess fallin að laða að fjárfesta en jafnframt er æskilegt að byggja upp þekkingu á olíumálum í landinu. Slík þekking gæti orðið mjög verðmæt jafnvel þótt við yrðum óheppin með Drekasvæðið, t.d. ef af vinnslu yrði við Grænland og Færeyjar (eða annars staðar við Ísland). Hjá Orkustofnun og í iðnaðarráðuneytinu var á sínum tíma hugað að stofnun ríkisolíufélags og fyrir fáeinum árum samþykktu fulltrúar allra flokka sem þá áttu sæti á Alþingi, nema VG, heimild til stofnunar slíks félags samhliða áformum um fyrsta Drekaútboðið. Æskilegt væri að útvíkka þá heimild enda var aðeins gert ráð fyrir félagi til að halda utan um vinnsluleyfi. RáðstafanirNauðsynlegt er að tryggja að þjóðin öll njóti góðs af því ef olía og gas finnast í íslenskri lögsögu. Ríkisolíufélag er liður í því. En einnig væri skynsamlegt að undirbúa hvernig farið yrði með hugsanlegan ávinning af olíu- og gasvinnslu. Það er kostur að setja slíkar reglur án þess þrýstings sem getur myndast á síðari stigum. Þar mætti einnig líta til Noregs þ.a. byggður verði upp sjóður sem háður yrði takmörkunum til að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn freistist til að eyða óhóflega og skapa þenslu. Þó ætti að sjálfsögðu að nýta ávinninginn til að bæta kjör landsmanna. Greiða undirstöðustéttum opinberra starfsmanna almennileg laun o.s.frv. ÁhrifOkkur liggur á. Ef það finnast vinnanlegar olíu- eða gaslindir í íslenskri lögsögu hefði það samdægurs mikil áhrif á hag landsmanna. Vaxtakjör ríkisins myndu batna til muna og vaxtakostnaður lækka. Það leyfir strax meiri útgjöld en ella, gerir Íbúðalánasjóði kleift að veita óverðtryggð lán á lágum vöxtum og leysa skuldavandann. Hægt yrði að halda úti stöðugum og sterkum gjaldmiðli án verðtryggingar. Norðursjávarolía og gas bjargaði á sínum tíma efnahag Bretlands og gerði Noreg að einu ríkasta landi heims. Smæð þjóðarinnar er kostur því að brot af þeim kolefnisauðlindum sem grannþjóðir okkar hafa yfir að ráða gerir sama gagn fyrir Íslendinga. Í því efnahagslega gjörningaveðri sem mun ríða yfir heiminn á næstu árum myndi slík viðbót við þær auðlindir sem Íslendingar eiga nú þegar tryggja velferð til framtíðar. Verum skynsöm og varfærin en leyfum okkur líka að vera bjartsýn. Það er fullt tilefni til þess. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Mest lesið Hver verður flottust við þingsetningu? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Að eitra Hvalfjörð Haraldur Eiríksson Skoðun Kirkjusókn ungra drengja Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Vítisfjörður Guðni Ársæll Indriðason Skoðun Heimskan í Hvíta húsinu – forðumst smit Halldór Reynisson Skoðun Vigdís og Súðavík Ásta F. Flosadóttir Skoðun Traustur leiðtogi með fjölbreytta reynslu Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun Sameiginleg markmið en ólíkar þarfir Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Ég á lítinn skrítinn skugga – langtímaáhrif krabbameina Hulda Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Um jarðgöng, ráðherra og blaðamenn Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Elskar þú að taka til? Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind, fordómar og siðferði – nýir tímar, ný viðmið Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Kirkjusókn ungra drengja Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Vigdís og Súðavík Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Heimskan í Hvíta húsinu – forðumst smit Halldór Reynisson skrifar Skoðun Ég á lítinn skrítinn skugga – langtímaáhrif krabbameina Hulda Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Traustur leiðtogi með fjölbreytta reynslu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sameiginleg markmið en ólíkar þarfir Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver verður flottust við þingsetningu? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Vítisfjörður Guðni Ársæll Indriðason skrifar Skoðun Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Tíminn er núna Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Slæmt hjónaband Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hinir heimsku Ólympíuleikar Rajan Parrikar skrifar Skoðun Að eitra Hvalfjörð Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Á að leyfa starfsfólki að staðna? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Fórnarlömb falsfrétta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Ógnir við öryggi kvenna í sundi, fangelsi og íþróttum Auður Magndís Auðardóttir skrifar Skoðun Verkföll kennara 2.0 – Leið úr ógöngum? Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Leðurblökur og aðrir laumufarþegar Guðbjörg Inga Aradóttir skrifar Skoðun Auðvitað er gripið til hræðsluáróðurs Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Við erum ekki ein og höfum ekki verið það lengi Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun „Mikil málamiðlun af okkar hálfu“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lygar og helvítis lygar Alexandra Briem skrifar Skoðun Óður til opinberra starfsmanna Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Frumkvöðlastarf Bata Akademíunnar - íslenska leiðin Ólafur Ágúst Hraundal skrifar Skoðun „Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt“ - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Að kasta steinum úr glerhúsi Páll Steingrímsson skrifar Sjá meira
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun
Skoðun Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson skrifar
Skoðun Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir skrifar
Skoðun „Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt“ - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun