
Þjóðarsátt um nýjan gjaldmiðil
Helmingur skulda fyrirtækja í landinu er í erlendum gjaldmiðlum. Fyrirtæki, sem aðeins hafa tekjur í íslenskum krónum, eru illa í stakk búin til að mæta frekara gengissigi.
Hvort tveggja, gengisvandi heimila og fyrirtækja, er sífellt viðfangsefni stjórnvalda og stofnana sem verja dýrmætum tíma, kunnáttu og fé í að leysa viðfangsefni sem beint eða óbeint má rekja til ótryggs gjaldmiðils og yfirvofandi verðbólguskota.
Þótt krónan hafi vissulega hjálpað útflutningsgreinum okkar og ferðaþjónustu eftir hrunið gengur ekki til lengdar að búa við örmynt sem kostar samfélagið, heimilin, fyrirtækin og hið opinbera ofurvexti og sveiflukenndari og lakari lífskjör en ella væri.
Verðum að marka stefnu
Síðastliðinn mánudag þurfti Alþingi að glíma við þennan innbyggða vanda; veikburða íslenska krónu. Þá brá svo við að ágæt samstaða náðist í þinginu um að herða enn gjaldeyrishöftin vegna vaxandi útstreymis á gjaldeyri og aukinnar hættu á gengissigi krónunnar. En gjaldeyrishöft eru eins og lyfjameðferð við erfiðum sjúkdómseinkennum. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er raunveruleg lækning fólgin í róttækum uppskurði. Gjaldeyrishöft, verðtrygging og önnur hjálpartæki krónunnar tala sínu máli og sýna svart á hvítu hvers konar stuðningsumhverfi þarf sífellt að búa henni með ærinni fyrirhöfn.
Stærsta verkefnið framundan er að undirbúa upptöku nýs gjaldmiðils og losa um höftin sem samofin eru krónunni. Skýr stefnumótun um framtíðarskipan í gjaldmiðilsmálum er því eitt af brýnustu verkefnum stjórnmálanna á næstu misserum.
Enginn stjórnmálaflokkur getur lokað augunum fyrir því að haldið er uppi fölsku gengi krónunnar og ef engin væru gjaldeyrishöftin þyrfti ekki að spyrja um afleiðingarnar: Aukna verðbólgu, rýrari kaupmátt og aukna skuldsetningu heimila og fyrirtækja.
Þótt Samfylkingin sé eini flokkurinn sem talað hefur skýrt í þessum efnum og hvatt til aðildar að Evrópusambandinu og upptöku evru hafa stjórnmálamenn úr nær öllum flokkum stigið fram og viðurkennt mikilvægi þess að ráða fram úr gjaldmiðilsvandanum. Umræða um einhliða upptöku annarra gjaldmiðla ber þessu glöggt vitni. Veigamikil rök hníga að því að besti kosturinn sé þó eftir sem áður að taka upp evru samfara aðild að Evrópusambandinu, ekki síst vegna þess að langstærstur hluti viðskipta okkar er við lönd innan evrusvæðisins, eða 42 prósent þeirra. Til samanburðar eru viðskipti okkar í Kanadadollurum innan við 2 prósent. Með sama hætti eru viðskiptin 10 prósent í Bandaríkjadölum sem og í breskum pundum og dönskum krónum. Loks er á það að líta að í ályktun Alþingis um aðildarviðræður við ESB er ekki gert ráð fyrir að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir upptöku annarra gjaldmiðla meðan viðræður standa yfir.
Setjumst við samningaborðið
Hreinskiptin og opin umræða um nýjan gjaldmiðil er þjóðarnauðsyn og mikilvægt er að ræða og meta þá kosti sem í stöðunni kunna að vera. Þetta á líka við um Samfylkinguna sem verður líka að vera opin fyrir umræðu um kosti og galla annarra gjaldmiðla ef svo illa færi að aðildarumsókn að ESB yrði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Að mínu viti kemur enda ekki til álita að búa við óbreytt ástand til framtíðar. Því skora ég á forystumenn allra stjórnmálaflokka að koma með opnum huga að þessu verkefni. Við þurfum þjóðarsátt um lausn á gjaldmiðilsvandanum.
Ríkisstjórnin ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í þessu efni. Á vegum efnahags- og viðskiptaráðherra hefur nú verið skipuð samráðsnefnd allra flokka og aðila vinnumarkaðarins um mótun gengis- og peningamálastefnu. Nefndinni er ætlað að skila greinargerð til ráðherra fyrir lok maímánaðar. Viðfangsefni hennar eru að fara yfir helstu kosti þjóðarinnar í gjaldeyris- og peningamálum, hvort heldur sem þeir felast í því að halda krónunni eða taka upp aðra mynt.
Jafnframt vinnur Seðlabanki Íslands að viðamikilli skýrslu um leiðir í gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar og er þess vænst að hún komi út með vorinu eða snemma sumars.
Með opnum huga
Ýmislegt bendir til þess að meiri ró sé að færast yfir evrusvæðið og góðar fréttir eru teknar að berast af mörkuðum beggja vegna Atlantsála eftir kreppuástand undanfarinna ára. Lánveitingar til heimila í löndum Evrópusambandsins hafa aukist á þessu ári. Þótt of snemmt sé að slá því föstu að tekist hafi að koma böndum á skuldakreppuna í evrulöndunum er þó ýmislegt sem bendir í þá áttina.
Batnandi ytri skilyrði koma íslensku þjóðinni til góða. En ávaxtanna af fórnum sínum undanfarin ár myndi hún njóta í enn ríkari mæli ef hún þyrfti ekki að glíma við gjaldmiðilsvanda sem samofinn er efnahagslegum óstöðugleika. Stjórnvöld geta ekki lengur skotið sér undan því að ræða í fullri alvöru og með opnum huga um stærsta vanda þjóðarinnar; gjaldmiðil sem nauðsynlegt er að hafa í gjaldeyrishöftum. Hagsmunir samfélagsins alls eru í húfi.
Skoðun

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar