Örn Svavarsson eigandi hennar segir hugmyndina að versluninni hafa fæðst fyrir nokkrum árum þegar hann bjó erlendis og sá að falleg hönnunarvara þurfti ekki endilega að kosta svo mikið.
„Það er mjög algengt að fólk komi til að kaupa gjafir en endi á að ákveða að kaupa líka fyrir sig. Þetta er á svo góðu verði," segir Örn og hlær.
Hönnun á viðráðanlegu verði
„Engin vandi er að fylla búð af flottum munum, en mikið af hönnunarvöru er rosalega dýr. Kúnstin er að finna vöru sem er falleg og öðruvísi á viðráðanlegu verði en samt með hagnýtt gildi. Best er ef varan er þannig gerð að hún komi manni í gott skap í leiðinni."
Minja er með vörur frá nokkrum íslenskum hönnuðum en eftir hrun hefur íslensk hönnun sótt í sig veðrið og mikið af fólki farið að búa til mjög vandaða hluti sem vakið hafa athygli og eru vinsælir.
„Einnig erum við með vörur frá nútímalistasafninu í New york en þeir framleiða sína eigin vörulínu. Um er að ræða flotta nytjagripi. Svo erum við með þekktu dýralampana frá Heico; kanínulampa, fugla og fleira."
Gjafakort og veggskreytingar

Nýjasta varan hjá Minju eru veggskreytingalímmiðar. „Þetta eru bæði stórar og litlar myndir af blómum, dýrum, náttúrustemningu, borgarmyndum, þekktum teiknimyndapersónum og fleiru sem hentar vel í stofuna, barnaherbergið eða á hvaða vegg sem er innan heimilisins."
Vaxandi áhugi

„Svo njótum við góðs af sífellt auknum ferðamannastraumi hér á Skólavörðutígnum. Þegar fólk kemur inn í verslunina okkar er algengt að það segi: Nú veit ég hvar ég kaupi næstu gjöf,“ segir Örn sýnilega hress með að þetta hugarfóstur hans nái svona vel til fólks.
Hann bendir áhugasömum á Facebook-síðu Minju og vef Minju, minja.is þar sem hægt er að skoða vörur og versla í netversluninni.