

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað
Tekjur af auðlindum til uppbyggingarEfnahagsleg uppbygging og vaxandi þjóðartekjur er eina leiðin til þess að verja til lengdar þá velferð sem við viljum búa ungum sem öldnum. Það er okkur því fagnaðarefni að geta kynnt nýja fjárfestingaráætlun fyrir Ísland fram til ársins 2015. Í henni felst ný atvinnustefna ríkisstjórnarinnar með áherslu á græna hagkerfið, skapandi greinar, ferðaþjónustu, tækniþróun og nýsköpun. Fjölbreytnin sem áætlunin ber með sér er sannarlega fráhvarf frá einhæfum áherslum framsóknar- og sjálfstæðismanna á stóriðjuna.
Áformin byggjast að verulegu leyti á því að takast megi að fjármagna tugmilljarða króna verkefni og framkvæmdir á næstu þremur árum með tekjum af veiðigjaldi og leigu aflahlutdeilda annars vegar og arði af rekstri bankanna og sölu á hlut ríkisins í þeim hins vegar. Ætla má að auknar tekjur af veiðigjaldi skili eiganda sínum – þjóðinni – 40 til 50 milljörðum króna næstu þrjú árin. Með hliðstæðum hætti má gera ráð fyrir að 75 milljarðar komi í hlut ríkisins á næstu þremur árum úr bönkunum. Þetta er þó háð því að sátt takist um að sjávarútvegurinn leggi meira af mörkum til uppbyggingar en hann gerir nú með sérstöku veiðigjaldi. Þetta er einnig háð þeim arði sem ríkið hefur af rekstri bankanna og sömuleiðis því að vel takist að selja hlut ríkisins í þeim á næstu misserum þótt ekki sé ætlunin enn um sinn að selja meirihlutaeignina í Landsbankanum. Ríkisfjármálaáætlun er að sjálfsögðu í forgangi eins og áður og fjárfestingaáætlunin mun engu breyta um markmiðið um jöfnuð í ríkisfjármálum árið 2014. Auknar fjárfestingar og kraftmeiri efnahagsbati mun styðja þá vegferð.
Framkvæmdum flýttÁ þremur næstu árum er ráðgert að 39 milljarðar króna af þessum tekjum renni til fjárfestinga í samræmi við áætlun okkar. Hún byggist á þeim rökum að skynsamlegt sé að verja umtalsverðum hluta auðlindagjaldsins og þeirra fjármuna sem bundnir hafa verið í bönkum í framkvæmdir og innviði samfélagsins með skipulögðum hætti. Gangi allt að óskum og lög um aukin veiðileyfagjöld taki gildi 1. september næstkomandi væri þannig hægt að flýta gerð Norðfjarðar- og Dýrafjarðarganga um 3 ár og hefjast jafnvel handa strax á næsta ári. Á þremur næstu árum er gert ráð fyrir að 7,5 milljörðum króna verði aukið við samgönguáætlun, en það gerbreytir þeirri mynd sem við blasir í samgöngubótum á næstu árum.
En arðsins af auðlind sjávar á þjóðin einnig að njóta með öðrum hætti. Á þremur næstu árum er gert ráð fyrir að verja allt að 6 milljörðum króna til rannsókna og tækniþróunarverkefna. Jafnframt er ráðgert að verja 3,6 milljörðum króna til sóknaráætlana landshlutanna. Með þessu er ráðgert að efla fjölbreytni atvinnulífsins og fjölga störfum í þekkingariðnaði. Undir merkjum sóknaráætlana er að nást sá ánægjulegi árangur að fulltrúar landshlutanna forgangsraða sjálfir þeim verkefnum sem til greina kemur að styðja með þessum hætti.
Næring fyrir atvinnulífiðNálægt þriðjungi arðsins af bönkunum og sölu á hlut ríkisins í þeim verður varið næstu þrjú árin til margvíslegrar uppbyggingar í ferðaþjónustu, skapandi greina og grænna og vistvænna verkefna. Alls er um að ræða 22 miljarða kóna. Til dæmis er ætlunin að tvöfalda árlegt framlag til Kvikmyndasjóðs. Byggingariðnaðurinn varð fyrir miklum skakkaföllum eftir þensluárin fyrir hrun og atvinnuleysi er mikið innan greinarinnar. Samkvæmt fjárfestingaráætluninni er ráðgert að flýta viðhaldi fasteigna í eigu ríkisins.
Verja á 1,5 milljörðum króna aukalega til margvíslegra viðhaldsverkefna víða um land þegar á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýtt fangelsi hefjist von bráðar og verður tveimur milljörðum króna varið til þeirra næstu tvö árin. Á næstu tveimur árum verður á þriðja milljarð króna varið til framkvæmda við Landeyjarhöfn og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju.
Búast má við því að ársverkum fjölgi um 4.000 verði fjárfestingaáætlunin að veruleika. Það segir þó ekki alla söguna því gera má ráð fyrir margfeldisáhrifum sem gæti fjölgað störfum alls um 10.000 á næstu þremur árum. Þetta hefur jákvæð áhrif á vinnumarkaðinn en búast má við að atvinnuleysi verði rúm 4 prósent árið 2015 samkvæmt áætluninni.
Hallalaus ríkissjóður 2014Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að örva atvinnulífið eftir áföllin munu skila fleiri störfum og meiri tekjum. Það á einnig við um tekjur ríkissjóðs enda verður ekki kvikað frá því markmiði að skila ríkissjóði hallalausum árið 2014 og greiða jafnt og þétt niður skuldir. Viðvarandi hallarekstur ríkissjóðs er uppskrift að lántöku og auknum vaxtakostnaði. Við höfum einsett okkur að gera ríkisreksturinn sjálfbæran á nýjan leik og sá er auðvitað kjarninn í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Athuganir benda til þess að af 39 milljarða króna fjárfestingum samkvæmt áætluninni muni um 17 milljarðar króna skila sér sem tekjur í ríkissjóð á næstu þremur árum.
Stillum saman strengiÉg fagna aukinni samstöðu á Alþingi um mikilvæg hagsmunamál þjóðarinnar. Það á ekki aðeins við um undirbúning og gerð þeirrar fjárfestingaáætlunar sem hér er reifuð. Þar hefur Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, lagt gjörva hönd á plóg. Samstaðan á einnig við um mótun nýs og betra Stjórnarráðs og stuðning í þinginu við lýðræðisumbætur og mótun nýrrar stjórnarskrár. Slík vinnubrögð eru merki um heilindi og heilbrigð viðbrögð þingmanna við kröfu þjóðarinnar um ný vinnubrögð og siðbót íslenskra stjórnmála. Aukinn samstarfsvilji um mál sem varða mikla hagsmuni almennings getur aukið trú manna á að Alþingi sé vanda sínum vaxið og hafi aðeins almannahag en ekki sérhagsmuni að leiðarljósi.
Skoðun

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar