
Norðurlönd á norðurskautssvæðinu
Norrænu ríkin eru lítil hvert um sig, en saman geta þau haft umtalsverð og jákvæð áhrif á þróun norðurskautssvæðanna og starfið í Norðurskautsráðinu. Sameiginlegar aðgerðir eru nauðsynlegar þar sem margir alþjóðlegir aðilar sýna norðurskautssvæðunum áhuga og við það verða til nýjar heimspólitískar áskoranir.
Hlýnun jarðar skapar ný tækifæri fyrir efnahagsþróun á norðurskautssvæðunum með nýjum siglingaleiðum, námarekstri og olíu- og gasvinnslu. Þetta getur verið jákvætt fyrir mörg samfélög á svæðinu, en hefur einnig í för með sér hættu á alvarlegum slysum. Hlýnunin hefur einnig neikvæð áhrif á margar hefðbundnar atvinnugreinar og búsetuskilyrði. Þess vegna er þörf fyrir jafnvægi í þróun, þar sem nýjar aðgerðir til að skapa hagvöxt verða að taka tillit til íbúa svæðisins og viðkvæmrar náttúru. Jafnframt verður að takmarka losun gróðushúsalofttegunda á heimsvísu og samfélögin verða að vera það sterk að þau geti tekist á við afleiðingar óhjákvæmilegra loftslagsbreytinga.
Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, lagði í skýrslu sinni frá 2009 til margvíslegar sameiginlegar aðgerðir á sviði utanríkis- og varnarstefnu með áherslu á Norður-Atlantshaf, þar á meðal sameiginlega loftrýmisgæslu yfir Íslandi. Ríkisstjórnir Norðurlandanna hafa brugðist við tillögunum á jákvæðan hátt og þetta dæmi sýnir að norrænu ríkin geta unnið saman að þróun nyrstu svæðanna.
Gagnsemi sameiginlegrar rammaáætlunar um formennsku þriggja norrænna ríkja (Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar) í Norðurskautsráðinu á árunum 2007 til 2013 hefur sannað sig. Þar var fjallað um sameiginleg markmið og forgangsröðun sem leiddi til þess að sett var á stofn skrifstofa fyrir Norðurskautsráðið. Norðurlandaráð telur mikilvægt að dragast ekki aftur úr þegar Kanadamenn taka við formennsku árið 2013. Norðurlönd eiga áfram að sýna frumkvæði og gegna sameiningarhlutverki í samstarfi á norðurskautssvæðunum.
Norðurlandaráð samþykkti því á vorþingi sínu í Reykjavík í mars síðastliðnum tillögu um að ríkisstjórnir Norðurlandanna ynnu sameiginlega stefnu um norrænt samstarf til að takast á við áskoranir norðurskautssvæðisins. Markmiðið ætti að vera að ná pólitískri fótfestu í stefnumálum eins og nýtingu náttúruauðlinda, fiskveiðum, umhverfisvernd, siglingaleiðum, vöktun og björgun á hafi, flutningum og innviðum og sjálfbærri efnahagsþróun sem gagnast íbúum norðurskautssvæðisins. Við verðum að byggja á því sem við erum sammála um og þróa þessa samstöðu þannig að hún nái til eins margra stefnumála og mögulegt er.
Með sameiginlegri stefnu geta norrænu ríkin lagt áherslu á sameiginleg markmið og sett í forgang sameiginlegar aðferðir til að koma þeim á framfæri.
Stefnan getur styrkt enn betur hlutverk Norðurlanda sem mikilvægs sameiningarafls fyrir íbúa, umhverfi og öryggi á norðurskautssvæðinu. Hugmyndin er ekki að mynda norrænan hóp í Norðurskautsráðinu. Þvert á móti viljum við styðja við og efla Norðurskautsráðið með því að norrænu ríkin leggi í auknum mæli sitt af mörkum sem þróttmikill aðili í Norðurskautsráðinu.
Kimmo Sasi, forseti Norðurlandaráðs, Finnlandi
Helgi Hjörvar, Íslandi
Bendiks H. Arnesen, Noregi
Bertel Haarder, Danmörku
Karin Åström, Svíþjóð
Skoðun

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar