
Um fjórfrelsi dýranna og reglur ESB
Einstaklingurinn sem afbrotið framdi hefur kannski talið sig í sama rétti og þann sem flytur dýr á milli landa í Evrópu, þar eru löndin jafn sett í þessu efni. Merðinum litla var lógað þegar til hans náðist. Hér gilda eðlilaga allt aðrar reglur vegna þess að Ísland er laust við megnið af smitsjúkdómum húsdýranna í Evrópu. En dýrastofnar okkar eru bæði heilbrigðir og viðkvæmir, þeir bera ekki í sér sömu mótefni gagnvart sjúkdómunum. Því er staðan sú að ef smit berst hingað getur orðið dýrafellir og gríðarlegt fjárhagslegt tjón. Þetta bann snýr því einnig að dýravernd hjá okkur og auðvitað höfum við orðið fyrir tilfinnanlegum skaða af sjúkdómum sem hafa eigi að síður borist hingað.
Hrossapest í skósólaFlestir muna eftir hitapest í hrossum sem olli miklu tjóni fyrir nokkrum árum, og talið er að hafi borist með skítugum reiðfatnaði eða skóm hestamanns. Svo ekki sé talað um vonda sjúkdóma sem bárust hingað á síðustu öld með innflutningi búfjár, t.d. karakúlfé. Við höfum glímt við afleiðingar af mæðiveiki, sauðfjárriðu, garnaveiki og kláða sem allt barst til landsins. Okkur hefur tekist með ærnum tilkostnaði að útrýma sumum þessara sjúkdóma. Eða þá tekist að hemja þá og halda þeim í skefjum, þó skýtur sauðfjárriðan upp kollinum öðru hvoru með vondum afleiðingum og niðurskurði.
Stundum hefur borist hingað hunda- og kattafár sem hefur leikið þessi húsdýr okkar grátt. Góða staðan er hins vegar sú að við erum laus við þá ógnvænlegu sjúkdóma sem fara oft eins og eldur í sinu um mörg ESB-lönd, ég nefni gin og klaufaveiki og kúariðuna. Hér eru smitsjúkdómar í húsdýrum örfáir og allir undir kontról og sjúkdómavarnir okkar góðar. Í Evrópu skipta þessir sjúkdómar tugum og koma upp með jöfnu millibili, sumir þeirra ógna lífi manna og dýra.
Hin banvæna flugaÞað má aldrei slaka á öryggisnetinu, við ættum frekar að herða það ef eitthvað væri. Ég þakka tollvörðum þeirra árvökulu augu. Þeir stöðva margan lögbrjótinn og mér er sagt að stundum sé þetta fólk með bréf frá ESB um að það megi fara með dýrið til Íslands, þeir kvitta upp á glæpinn af vangá.
Erlendir veiðimenn gætu með útbúnaði sínum borið sjúkdóma í laxfiska veiðiánna eða silung vatnanna. Því gilda strangar reglur um sótthreinsun og æskilegast að þeir komi ekki með veiðigræjur sínar með sér til landsins. Í viðræðum Íslands og ESB liggja faldar hættur. ESB hefur engu landi gefið eftir fjórfrelsi dýranna og skilningurinn í Brussel er ekki séður með gleraugum dýralæknisins hvort í hlut eiga lifandi dýr eða hrátt kjöt sem einnig getur verið smitberi. Kann að vera að doktorsprófið í kynæxlun laxfiska hjálpi Össurri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra til að kokgleypa ekki banvæna flugu eins og fjórfrelsi húsdýranna er okkur Íslendingum.
Öryggishlið í KeflavíkHér ætti að vera öryggishlið í Keflavík og á Seyðisfirði sem allir þeir færu um sem eru með fatnað eða annað og ætla í sveitina eða t.d. nú á Landsmót hestamanna. Eins er áróður og upplýsingar í flugvélum komufarþega mjög takmarkaður hvað hættuna varðar. Og Íslendingar sjálfir eru því miður alltof margir kærulausir erlendis.
Nýja-Sjáland er heilbrigt land hvað dýrasjúkdóma varðar og mikið útflutningsland á matvælum. Að ganga af kæruleysi um þeirra landamæri er glæpur og tekið hart á sökudólgunum. Vonandi hefur litli mörðurinn gert það gagn að hann opnar augu okkar fyrir því að innflutningur lifandi dýra og á hráu kjöti er dauðans alvara.
Skoðun

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar