
Stjórnarskrá allra Íslendinga
Áfram var því byggt á fullveldisstjórnarskránni frá 1920 sem að uppistöðu byggði á þeirri dönsku sem Kristján IX Danakonungur rétti okkur árið 1874 og lítið hafði breyst frá endalokum einveldis í Danmörku árið 1849. Jafnframt var ákveðið að Íslendingar myndu í kjölfarið setja sér sína eigin stjórnarskrá. Á því varð hins vegar óhófleg töf. Þrátt fyrir fjölda stjórnarskrárnefnda og ýmsar smávægilegar breytingar auk nýs mannréttindakafla árið 1995 reyndist Alþingi ófært um slíka heildarendurskoðun.
Upp úr skotgröfunumÞað var ekki fyrr en sumarið 2010, í kjölfar mikils óróa í samfélaginu, að Alþingi fann leiðina upp úr skotgröfunum og ákvað að efna til þjóðkjörs til stjórnlagaþings – sem síðar breyttist í þingkjörið stjórnlagaráð eins og við þekkjum. Á herðum þúsund manna þjóðfundar og árslangri sérfræðivinnu sjö manna stjórnlaganefndar fékk 25 manna þjóðkjörið og þingskipað stjórnlagaráð fjóra mánuði til að semja þau drög að nýrri stjórnarskrá sem kjósendur fá nú að segja álit sitt á. Nálega sjötíu árum frá lýðveldistökunni hefur íslensk stjórnarskrá loksins litið dagsins ljós.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust verður spurt hvort við viljum áfram byggja á þeirri dönsku eða þeirri nýju íslensku sem verið hefur í undirbúningi í öll þessi ár. Auk þess fá kjósendur tækifæri til að segja álit sitt á fimm helstu álitamálum frumvarpsdraganna, svo sem um aukið beint lýðræði, þjóðkirkjuna og kosningatilhögun. Reynist meirihluti kjósenda ósammála stjórnlagaráði í einhverjum tilvikum verður frumvarpinu breytt til samræmis áður en það kemur til atkvæða á Alþingi, sem vitaskuld er stjórnarskrárgjafinn.
Áhugi erlendisVið sem sátum í stjórnlagaráði í umboði kjósenda og Alþingis höfum orðið vör við gríðarlegan áhuga erlendis á þeirri lýðræðisvakningu sem útlendingar upplifa að hér hafi orðið með starfi stjórnlagaráðs og aðkomu þjóðarinnar að setningu eigin stjórnarskrár. Varla líður sá dagur án þess að erlendir fjölmiðlar séu í sambandi, fjöldi málstofa hefur verið haldinn í erlendum háskólum og fræðimenn víða um lönd keppast nú við að greina það sem hér er á ferðinni.
Í því samhengi er merkilegt hvað íslenskir fjölmiðlar hafa reynst áhugalitlir og hryggilegt að sjá suma þá sem hingað til hafa verið taldir málsmetandi tala málið niður án þess að færa fram efnisleg rök. Á því verður vonandi breyting í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar sem jafnvel má gera ráð fyrir að álíka margir taki þátt í og í kjörinu til stjórnlagaþingsins, þó svo að reynslan erlendis frá sýni að þátttaka í einsmálsatkvæðagreiðslum eins og þessum sé yfirleitt langtum minni en í almennum atkvæðagreiðslum, svo sem í þingkjöri.
Tækifærið er núnaTil eru þeir sem telja að sökum anna í þjóðfélaginu eftir hrun sé betra að bíða með stjórnlagaumbætur þar til um hægist. Í mínum huga er þó kýrskýrt að fari þetta tækifæri forgörðum fáist ekki annað á næstu áratugum. Erlendar rannsóknir sýna að stjórnarskrár eru eiginlega aldrei samdar og settar nema í kjölfar krísa af einhverju tagi.
Norski fræðimaðurinn Jon Elster, sem stendur fremst þeirra sem rannsaka stjórnarskrárgerð, greinir sjö lotur í setningu stjórnarskráa á Vesturlöndum frá því að sú bandaríska var sett árið 1787, nánast alltaf í kjölfar áfalls. Athyglisvert er að þeir á stjórnlagaþinginu í Fíladelfíu fengu jafn langan tíma til að semja bandarísku stjórnarskrána og stjórnlagaráðið hér fékk til þess að semja þá íslensku. Óvanalegt mun hins vegar vera að allir fulltrúarnir hafi komist að samhljóða niðurstöðu um eina stjórnarskrártillögu eins og hér varð.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar