
Himinn og haf kveður…
Þar sem enginn veitingastaður er í Garðabæ (ef IKEA er frátalið) hefur það verið sérstök ánægja fyrir mig að finna velviljann hjá íbúum og þörfina sem er til staðar fyrir veitingaþjónustu í bænum – og síðast en ekki síst þakklæti íbúanna.
Þessi viðbrögð hafa hvatt mig áfram til að koma útikaffihúsinu á næsta stig og gera það að heilsárs veitingastað. Fyrirmyndin er að vissu leyti uppbygging Nauthóls, sem byrjaði sem sumarbústaður við Nauthólsvík.
Bæjarráð Garðabæjar hefur hins vegar hafnað því að timburhús fái tímabundið að hýsa starfsemi veitingastaðar á lóðinni. Ástæðan mun vera sú að sumarbústaður sé of frábrugðinn metnaðarfullum hugmyndum bæjaryfirvalda um sérhannað húsnæði á þessari frábæru lóð við sjávarsíðuna, þar sem útsýni er stórbrotið og sólsetrin dásamleg.
Stjórnsýsla í þágu íbúa?
Nú eru tæp fjögur ár frá því ég sendi inn fyrsta erindið til bæjarráðs um að fá að hefja veitingarekstur í timburhúsi við Arnarnesvog. Þá hafði ekki verið gert ráð fyrir byggingum á „græna svæðinu" við voginn –hvað þá húsi undir veitingarekstur. Erindið varð til þess að deiliskipulagið var endurskoðað og gert ráð fyrir lóð undir veitingastað.
Lóðin var síðan auglýst undir metnaðarfullum formerkjum og gerð krafa um vandaða hönnun byggingar og lóðar þar sem ákveðnar áherslur þurfti að virða. Nexus arkitektar gengu til liðs við mig og hönnuðu byggingu sem mætti kröfum bæjarins. Ég fékk lóðina og hófst þá handa við að láta verkefnið verða að veruleika. Útikaffihúsið var fyrsti hluti af uppbyggingu staðarins.
Allmargir sérfræðingar hafa lagt mér lið og kynnt þetta skemmtilega verkefni mögulegum fjárfestum. Langflestum finnst verkefnið afar áhugavert og spennandi, hugmyndafræðin góð og útsýnið frábært.
Niðurstaða þessarar vinnu – og mat sérfræðinganna – er hins vegar að á þessum tímapunkti muni enginn setja fjármagn í jafn dýra byggingu og gerð er krafa um vegna aðstæðna í samfélaginu. Ástæðurnar eru líka þær að verkefnið fær ekki að byggjast upp á eigin forsendum og að veitingarekstur er áhætturekstur.
Fjárfestar vilja sjá rekstur af þessu tagi byggjast upp frá grunni, líkt og Nauthóll gerði; fyrst sem sumarbústað, og ef uppbygging gengur eftir og sýni að reksturinn standi undir jafn dýrri byggingu og óskað er eftir, sé möguleiki á að fjármagna steinsteypt hús.
Þá leið er ég tilbúin að fara. Byrja á því að koma upp fallegum og hlýlegum sumarbústað sem gæti tekið á móti Garðbæingum og höfuðborgarbúum allan ársins hring og veitt þeim notalega og góða þjónustu á þessum einstaka stað. Í þriðja sinn hef ég nú lagt fram beiðni til yfirvalda um að fá að hefja starfsemina í sumarbústað. Þeirri leið hefur bæjarráð Garðabæjar nú hafnað.
Ég verð þó að hrósa stjórnsýslunni í Garðabæ fyrir gegnsæ vinnubrögð og fyrir að láta pólitík ekki ráða för í þessu máli. En ég verð jafnframt að lýsa yfir miklum vonbrigðum með það að stjórnsýslan láti stífar reglur og metnað standa í vegi fyrir frumkvöðlum, sem vilja láta gott af sér leiða fyrir samfélagið, því að kostnaðarlausu. Er það virkilega það sem íbúar Garðabæjar vilja?
Lífsgæði og hjartað sem slær
Eftir stendur að Garðbæingar hafa enn engan veitingastað að sækja í bænum sínum. Þeir verða af lífsgæðum sem ég tel eðlileg og nauðsynleg í nútímasamfélögum. Fyrir mig, sem hef haft aðsetur í sex löndum og kynnst því hversu mikilvæg hverfamenning er fyrir samfélögin, er það ekki ásættanlegt.
Það er svo sannarlega „Himinn og haf" á milli þess sem bæjaryfirvöldum finnst mikilvægt í húsakosti undir veitingastað við Arnarnesvog og þess sem mér finnst skipta máli, þ.e. innra starfinu og hjartanu sem þar slær. Ég hef hins vegar fulla trú á því að fyrst bæjaryfirvöld þiggja ekki einkaframtakið, muni þau sjálf framkvæma. Innan tíðar tilkynni þau íbúum Garðabæjar hvernig þau ætli að stuðla að þessari framþróun. Fulltrúar bæjarbúa í bæjarstjórn hljóta að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að stuðla að lífsgæðum íbúanna og innri gæðum samfélagsins.
Ég bíð því full eftirvæntingar eftir því að bæjaryfirvöld kynni áform sín í þessum efnum og vænti þess að geta sótt metnaðarfullan veitingastað við Arnarnesvoginn sem allra fyrst. Og satt best að segja finnst mér minnstu máli skipta hvort hann er staðsettur í hlýlegu timburhúsi eða glæsilegri steinbyggingu. Það er nefnilega ekki húsið sem skapar líf, það gerir fólkið.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar