

Vilt þú tillögur stjórnlagaráðs sem grundvöll að stjórnarskrá?
Spurningin er í heild þannig: „Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?"
Spurningin er nokkuð opin, væntanlega vísvitandi. Fyrir liggur að þingnefnd sú sem fjallar um málið er að láta hóp lögfræðinga yfirfara tillögur stjórnlagaráðs. Ekki til að breyta þeim efnislega, heldur til að lagfæra hugsanlega fræðilega hnökra. Jafnframt verður að ætla að þingnefndin muni bregðast við svörum þjóðarinnar við sundurgreindu spurningunum fimm. Komi ótvírætt í ljós að þjóðin vilji hafa einhver af þeim atriðum sem um er spurt á annan veg en stjórnlagaráð leggur til, hlýtur þingnefndin að breyta frumvarpinu eins og það kom frá ráðinu til samræmis.
Grundvallarspurningin er því hvort leggja skuli tillögur stjórnlagaráðs fyrir þingið sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá eftir lagatæknilegar lagfæringar og breytingar í samræmi við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þjóðaratkvæðagreiðslan er einungis ráðgefandi fyrir þá nefnd þingsins sem mun að lokum leggja frumvarpið fyrir þingið. Síðan tekur við umræða og afgreiðsla á þinginu sjálfu. Þingið gæti átt til að breyta frumvarpinu enn frekar – en vonandi aðeins til bóta! Þjóðin er því ekki að taka afstöðu til endanlegrar gerðar stjórnarskrár á þessu stigi. Vonandi gefst henni tækifæri til þess á lokastigi. Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október er engu að síður afar mikilvægur áfangi að því marki að fá lýðveldinu endurbætta og heilstæða stjórnarskrá.
Rök fyrir JÁ við spurningunniÞjóðin hefur búið við bráðabirgðastjórnarskrá allan lýðveldistímann. Nú er tækifæri til að setja okkur tryggan íslenskan samfélagssáttmála. Það er allsendis óvíst hvort annað tækifæri gefst næstu áratugina.
Í stjórnarskrárfrumvarpi stjórnlagaráðs eru m.a. eftirfarandi nýmæli:
n Ákvæði um mannréttindi efld.
n Náttúruvernd gert hærra undir höfði en áður.
n Auðlindir skilgreindar sem þjóðareign og kveðið á um afnotagreiðslur.
n Jafn atkvæðisréttur allra og persónukjör.
n Staða Alþingis styrkt andspænis framkvæmdarvaldinu.
n Ítarleg ný ákvæði um beint lýðræði.
n Stjórnarskráin vernduð með skipun eftirlitsnefndar, Lögréttu.
n Ákvæði um forseta Íslands gerð skýr og honum falið aðhaldshlutverk.
n Þingræðið treyst, m.a. með því að Alþingi kjósi forsætisráðherra.
n Ákvæði til að tryggja óháð val á dómurum.
n Sveitarfélögunum lyft á stall í sérstökum kafla.
n Tryggt að ekki verði af inngöngu í Evrópusambandið nema þjóðin ákveði það sjálf.
n Þjóðin staðfesti framvegis stjórnarskrárbreytingar.
Rök fyrir NEI við spurningunniÚrtöluraddir heyrast:
n „Ekki núna heldur seinna" segja sumir. Svo hefur verið talað í nær sjötíu ár. Tilraunir hafa verið gerðar til semja nýja stjórnarskrá – en án árangurs. Einmitt nú gefst kjósendum kostur á að tjá hug sinn og stuðla að gagngerum umbótum á stjórnarskránni.
n „Það er verið að bylta stjórnarskránni" er sagt. Þetta eru ýkjur. Það eru tiltölulega fá atriði sem breytast umtalsvert, en lykilatriði að vísu. En einmitt um flest þeirra verður spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
n „Gamla stjórnarskráin olli ekki kreppunni" er líka sagt. Hún var e.t.v. ekki bein örsök en með því herta aðhaldi að valdinu sem lagt er til í stjórnarskrárfrumvarpinu er það gert ólíklegra að þvílík ósköp af mannavöldum hendi okkur aftur.
n Heyrist hefur að það hafi ekki verið „rétta" fólkið sem sat í stjórnlagaráði. Hverjir völdust til verksins má ekki skipta máli heldur innihaldið í því sem lagt er til. Kjósendur dæmi af verkunum, ekki höfundunum. Aukin heldur kom fjöldi annarra en stjórnlagaráðsmanna að málinu, svo sem stjórnlaganefnd, sérfræðingar stjórnlagaráðs og fyrri stjórnarskrárnefndir, en ekki síst þúsundmannafundur þjóðarinnar haustið 2010.
n „Frumvarp stjórnlagaráðs er gallað" segja einstaka fræðingar, en nefna þó sjaldnast bitastæð dæmi. Vitaskuld getur gott lengi batnað. Verið er að yfirfara lögfræðina í frumvarpinu og þjóðin mun kveða upp úr um nokkur álitamál í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Síðan geta þingmenn, velviljaðir málinu, bætt um betur þegar frumvarpið hefur verið lagt fram. Fullyrða má að aldrei hafi jafn vel verið staðið að endurbótum á stjórnarskránni og nú.
ÁlyktunValið stendur aðeins um tvennt: Stjórnarskrá sem byggð er á frumvarpi stjórnlagaráðs eða núgildandi bráðabirgðastjórnarskrá frá 1944. Vilji kjósendur koma í veg fyrir að málinu verði drepið á dreif og að stjórnarskrárumbætur verði að engu eiga þeir að flykkjast á kjörstað og gjalda stjórnarskrárfrumvarpinu jáyrði sitt.
Verði þátttaka 20. október góð og afstaða kjósenda afgerandi hlýtur þingið að taka mark á niðurstöðunum og greiða götu nýrrar stjórnarskrár sem getur tekið gildi 17. júní 2013.
Höfundur þessa pistils bendir á að nú gefst einstætt tækifæri til að stuðla að bættum stjórnarháttum og mælir því eindregið með jáyrði við grundvallarspurningunni um stjórnarskrárfrumvarpið.
Skoðun

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar