Ræða lagasetningu vegna lánsveða lífeyrissjóðanna - Fréttaskýring [email protected] skrifar 20. nóvember 2012 06:00 húsnæði Mikið af lánum lífeyrissjóðanna er með lánsveðum í annarra eignum. Viðræður við ríkisstjórnina um lausn á deilunni hafa engu skilað.fréttablaðið/vilhelm
Deilan á milli lífeyrissjóðanna og stjórnvalda um aðkomu sjóðanna að sértækum aðgerðum fyrir skuldara og fjárfestingum í kjölfar hrunsins hefur siglt í strand. Ríkisstjórnin ræðir málið á fundi sínum í dag, en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að innan stjórnkerfisins séu nú allar leiðir skoðaðar; þar með talið að setja lög á sjóðina. Upphaf deilunnar má rekja til viljayfirlýsingar ríkisstjórnar, lífeyrissjóða og fjármálastofnana frá desember 2010. Þar var tilkynnt um aðgerðir til að bregðast við skuldavanda heimilanna og sagt að heildarumfangið yrði yfir 100 milljarðar króna. Viðræður um hvernig aðkomu lífeyrissjóðanna yrði háttað sigldu hins vegar í strand. Sjóðirnir sögðust ekki geta, vegna laga, fellt niður innheimtanlegar kröfur og væri því óheimilt að koma að skuldaaðlögun. Þá fóru í gang viðræður um þátttöku lífeyrissjóðanna í ýmsum verkefnum, en lítið hefur orðið úr þeim. Arnar Sigurmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, hefur tekið þátt í viðræðunum fyrir þeirra hönd. Hann segir að þegar samið var við fjármálaráðuneytið 8. febrúar, um þátttöku í gjaldeyrisútboði, hafi sjóðirnir litið svo á að þeir hefðu uppfyllt sitt. Fella ætti sérstakan skatt á lífeyrissjóðina, sem skila átti 2,8 milljörðum, niður vegna útboðanna. „Það lá fyrir að helmingurinn af upphæðinni var strax í gjaldeyrisútboði viku síðar, eða 15. febrúar, það voru yfir 100 milljónir evra. Búið var að reikna út hagnað ríkisins af þeim viðskiptum og bara þau viðskipti áttu að duga til að klára annað árið," segir hann, og vísar þar til 2,8 milljarða sem útboðið átti að skila í ríkissjóð. Í ljós hafi hins vegar komið að hagnaður ríkisins var mun lægri en reiknað hafi verið með. Þau mistök séu ekki sjóðunum að kenna og því sé fráleitt að standa ekki við samkomulagið um að fella skattinn niður bæði árin. Arnar segir að í viljayfirlýsingunni frá 2010 sé kveðið á um að lífeyrissjóðirnir taki þátt í fjármögnun. Reynt hafi verið að finna leiðir til þess, en það ekki tekist.
Fréttir Mest lesið Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Innlent „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Innlent Tveir „galdramenn“ í haldi Innlent Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Erlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Innlent Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Innlent Fleiri fréttir Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Ungt fólk sækir meira á Vog og þaulskipulögð þjófagengi Skógar Reykjavíkur séu hundruð milljarða króna virði Nýju hættumatskorti ætlað að ná betur utan um hættu utan Reykjanesskagans Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Lengja opnunartímann aftur Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Stefnir í annað metár í frávísunum Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Börn niður í átta mánaða fá inni á leikskóla Jörð skelfur í Ljósufjöllum Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Öll börn fái leikskólapláss frá 18 mánaða aldri Gullbakka stolið á Skólavörðustíg: „Þetta eru galdramenn“ Frú Vigdís fagnar 95 ára afmæli Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð í Bárðarbungu Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Áttræður faðirinn fékk hjartaáfall Þjófnaður, rúðubrot og líkamsárás Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann Ferðamaður rændur og kortið notað fyrir tæpa milljón Sjá meira