Innlent

Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð

Árni Sæberg skrifar
Sendiherrabústaðurinn er allur sá glæsilegasti en hann er sagður krefjast umtalsverðs viðhalds.
Sendiherrabústaðurinn er allur sá glæsilegasti en hann er sagður krefjast umtalsverðs viðhalds. PrivatMegleren Dyve & Partnere

Íslenska sendiráðið í Ósló í Noregi hefur sett sendiherrabústaðinn í Bygdøy á sölu og keypt minni íbúð í miðbæ Óslóar. Ásett verð er 75 milljónir norskra króna, tæplega einn milljarður króna.

Frá þessu greinir norski miðillinn E24 og hefur eftir utanríkisráðuneytinu að stefnt sé að því að selja dýr, stór og viðhaldsfrek einbýlishús og kaupa minni íbúðir í staðinn, sem séu ódýrar í rekstri og krefjist minna viðhalds.

Ný íbúð þegar keypt

Þegar hafi verið gengið frá kaupum á íbúð í miðbæ Óslóar sem bjóði einnig upp á meira öryggi en núverandi sendiherrabústaður. Íbúðin sé samt sem áður ekki síðri til veislu- og viðburðahalda.

Ein þriggja stofa í húsinu. Hér hafa ófáar veislurnar án efa verið haldnar í gegnum árin.PrivatMegleren Dyve & Partnere

Sendiherrabústaðurinn sé 768 fermetrar og í honum séu sjö svefnherbergi, tvö eldhús, þrjár stofur. Húsið standi á ríflega 0,8 hektara lóð. Ítarlega fasteignaauglýsingu má sjá hér.

Var í eigu súkkulaðikóngs

Húsið hafi verið í eigu íslenska ríkisins frá árinu 1952 en hafi þar áður verið í eigu kaupsýslumannsins Johan Throne Holst, sem gerði súkkulaðigerðina Freiu að þeirri stærstu sinnar tegundar í Noregi.

Sá sem kaupir húsið af ríkinu fær þennan fína arinn.PrivatMegleren Dyve & Partnere

Þá segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem sendiherrabústaðurinn er settur á sölu en það hafi verið gert árið 2009, í kjölfar efnahagshrunsins. Þá hafi nægilega hátt tilboð ekki borist í eignina og hún því haldist í íslenskri eigu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×