
Kirkjan kostar lítið
Ég held að fólk átti sig t.d. ekki á því alla jafna að útför sem nú þegar kostar fólk stórar upphæðir mundi kosta mun meira ef borga þyrfti raunkostnað fyrir kirkju, prest, organista, kirkjuvörð, þrif o.s.frv. Stofnun sem tæki að sér slíka þjónustu þyrfti líklega að setja upp 2-300 þúsund krónur fyrir þjónustuna sem nú er innifalin í sóknargjaldinu. Auðvelt er t.d. að bera saman að ferming kostar 9.300 krónur í þjóðkirkjunni skv. gjaldskrá ráðuneytis en við það bætast kennslugögn o.fl. þannig að í minni sókn verður heildarkostnaður fyrir allan veturinn 15 þúsund krónur. Fermingin sjálf kostar hins vegar ekkert. En hjá Siðmennt er mér tjáð að það sem þau kalla „fermingu" kosti í undirbúningi 25 þúsund og athöfnin sjálf 15 þúsund, samtals 40 þúsund krónur. Líklega er það raunkostnaður sem gæti þó verið hærri en það fer eftir stærð hópsins hverju sinni og hagkvæmni.
Laun presta eru að vísu ekki í þessu dæmi sem hér hefur verið rakið að framan. Laun presta koma úr ríkissjóði en þau eru afgjald af jörðum sem kirkjan átti en ríkið fékk til eignar skv. samningi milli ríkis og kirkju sem gerður var árið 1997. Laun eru því ekki kostuð af ríkinu, svo því sé nú haldið til haga.
Greiðslur til presta fyrir prestsverk eru hluti launa þeirra og aukaverkagreiðslurnar m.a. hugsaðar þannig að með þeim sé prestum sem vinna fleiri prestsverk en aðrir, s.s. skírnir, hjónavígslur og útfarir, umbunað fyrir meira vinnuframlag. Að öðru leyti eru prestar með sömu grunnlaun en þó hafa allmargir prestar, einkum á landsbyggðinni, tekjur af rekstri prestssetursjarða og hlunnindum af þeim.
Fjögurhundruðkallinn?
Eins og fram kom í systurgrein þessarar hefur 600 manna golfklúbbur meiri tekjur en kirkjusókn með ríflega tífalt fleiri meðlimi. Minnsti golfklúbburinn á höfuðborgarsvæðinu veltir hærri upphæð en annar fjölmennasti söfnuður í Reykjavík. Klúbburinn rekur starf í fimm mánuði á ári en kirkjan í tólf mánuði. Núna borga ég sem meðlimur í þjóðkirkjunni um 1.100 krónur á mánuði en sá hængur er á að ríkið skilar ekki nema rúmlega 700 krónum til sóknar minnar. Hér munar um 400 krónum eða rúmlega 36 af hundraði sem hverfa í ríkiskassann.
Hugsaðu um þessi rök sem ég hef nú fært fram í tveimur greinum þegar þú greiðir þínar 1.100 krónur til trúfélags þíns á mánuði og biddu „rangláta ráðsmenn" ríkisins að sjá til þess að upphæðinni allri verði skilað til þíns safnaðar. Trúfélögin í landinu mega ekki við þessum brigslum. Þau gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í mótun einstaklinga og samfélags. Þjóðkirkjan kostar lítið og starf trúfélaga einnig en þau þurfa nú sem fyrr að fá lögmætar tekjur sínar að fullu. Þau eiga ekki að þurfa að sæta því að vera hlunnfarin og að lög séu brotin á þeim. Við viljum væntanlega öll búa í réttarríki.
Með ósk um gleðileg jól til handa öllum og farsælt golf hjá kylfingum næsta sumar!
Skoðun

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar