Í byrjun vikunnar getur oft verið erfitt að koma sér í gang í eldhúsinu og finna upp á einhverju sniðugu í kvöldmatinn.
Hér má sjá einfalda uppskrift að guðdómlegri kjúklingasúpu. Súpan er holl og umfram allt mjög fljótleg í vinnslu.
Nota má það grænmeti sem til er í ískápnum eftir vikuna og breyta uppskriftinn að smekk.
Matarolía
2 kjúklingabringur
2 1/2 msk rautt karrýmauk
4-5 cm fersk engiferrót
1 rauðlaukur
8 dl kjúklingasoð
1 dós kókosmjólk
1-2 þurrkuð chillí
1/2 búnt ferskur kóriander
2 tsk limesafi
1 msk púðursykur (má sleppa)
Salt og pipar
Steikið kjúklinginn og grænmetið upp úr olíunni og rauða karrýmaukina, bætið því næst kjúklingasoðinu og kókosmjólkinni út í og sjóðið.
Bætið chilli, limesafa, púðusykri og salti og pipar við.
Leyfið súpunni að malla í dágóða stund og endið á því að rífa ferskt kóríander ofan í súpuna.
Smakkið til og bætið og breytið að vild.
Unaðsleg kjúklingasúpa á mánudegi
