Hefðin með Fram þó Valur eigi titil að verja Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 10. mars 2013 10:00 Fögnuður Vals í fyrra var innilegur. Mynd / Daníel
Fjórða árið í röð verður það Fram eða Valur sem verður bikarmeistari kvenna í handbolta því liðin mætast í úrslitum Síma bikarsins í dag klukkan 16:00. Þetta er jafnframt í þriðja skiptið á fjórum árum sem liðin mætast í úrslitum. Hefðin er með Fram því liðið hefur 14 sinnum fagnað bikarmeistaratitlinum en Valur hefur aðeins 4 sinnum unnið bikarinn. Ekki nóg með að Fram hafi oftast orðið bikarmeistari þá hefur aðstoðarþjálfari liðsins, Guðríður Guðjónsdóttir alltaf komið að bikarmeistaratitlum kvennaliðs Fram, ýmist sem leikmaður eða þjálfari. Þarna mætast sigursælustu kvennalið sögunnar því Fram hefur oftast allra orðið Íslandsmeistari kvenna, 19 sinnum, og Valur næst oftast eða 15 sinnum. Fram varð bikarmeistari bæði 2010 og 2011 og vann Val í úrslitum í bæði skiptin. Valur sem orðið hefur Íslandsmeistari þrjú ár í röð náði loks að landa bikarnum í fyrra, í fyrsta sinn í 12 ár, með því að leggja ÍBV í úrslitum en Valur sigraði þá Fram í átta liða úrslitum. Valur hefur sigrað Fram í úrslitum Íslandsmótsins þrjú síðustu ár en Fram hefur haft tak á Val þegar komið er í Laugardalshöllina. Í dag kemur ljós hvort Fram haldi taki sínu á Val í bikarúrslitum eða hvort Valur nær að vinna bikarinn annað árið í röð, í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Íslenski handboltinn Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Enski boltinn Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Íslenski boltinn „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Sjá meira