Íslenski handboltinn

Halldór Jóhann: Við erum bara ekkert eðlilega lélegir í fyrri hálfleik
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var ómyrkur í máli eftir fimm marka tap sinna manna gegn FH í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Hann segist sjaldan hafa séð jafn slæman hálfleik og sínir menn sýndu í fyrri hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Valur 31-36 | Valsmenn ekki í vandræðum með Fram
Valur tryggði sér sæti í undanúrslitum fyrr í kvöld eftir frábæran sigur á Fram í Safamýrinni. Valur var með yfirhöndina nær allan leikinn og sigruðu að lokum með fimm mörkum, 31-36. Fram er þar með komið í sumarfrí.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – ÍBV 22-25 | Eyjamenn örugglega í undanúrslit
ÍBV er komið í undanúrslit Olís deildarinnar í handbolta eftir góða ferð í Garðabæinn í dag.

Halldór Jóhann: Vorum með fjórtán tapaða bolta en unnum
Selfoss er komið með forystuna í einvíginu gegn FH eftir eins marks sigur 27-28. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var afar ánægður eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Fram 34-24 | Valur sýndi klærnar gegn Fram
Valur vann sannfærandi 34-24 sigur þegar liðið fékk Fram í heimsókn í Origo-höllina að Hlíðarenda í fyrstu rimmu liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV – Stjarnan 36-27 | Öruggur sigur Eyjamanna í fyrsta leik
ÍBV vann öruggan níu marka sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í fyrsta leik úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 36-27.

Segist geta spilað í Danmörku eða Færeyjum svo lengi sem heilbrigðiskerfið haldi velli
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson segir að hann geti spilað landsleiki í Danmörku eða Færeyjum svo lengi sem heilbrigðiskerfi landsins haldi velli.

Valskonur sóttu tvo leikmenn yfir hátíðarnar
Valskonur eru þegar farnar að styrkja sig fyrir átök næsta tímabils í Olís-deild kvenna í handbolta. Yfir páskahelgina var staðfest að þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir væru gengnar í raðir Vals.

Umfjöllun og viðtöl: Valur – KA/Þór 29-23 | Lovísa frábær þegar Valur hirti annað sætið af KA/Þór
Valur náði að hirða annað sæti í Olísdeild kvenna í handbolta af KA/Þór með 29-23 sigri í leik liðanna í lokaumferð deildarkeppninnar í Origo-höllinni að Hlíðarenda í kvöld.

„Þetta var mjög döpur frammistaða“
Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka, var svekktur eftir tólf marka tap á móti Stjörnunni í síðasta leik Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Haukar lentu undir strax í byrjun leiks og áttu erfitt með að koma sér almennilega inn í leikinn. Lokatölur 32-20.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – Haukar 32-20| Öruggur sigur Stjörnunnar á Haukum
Stjarnan og Haukar mættust í lokaumferð Olís-deildar kvenna í handbolta. Stjörnukonur tóku stjórnina snemma leiks og unnu öruggan tólf marka sigur, 32-20.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Valur 26-38 | Valur er deildarmeistari
Valur er deildarmeistari eftir stórsigur á Selfossi í lokaumferð Olís-deildar karla, 26-38. Valsmenn höfðu yfirhöndina frá upphafi og sáu til þess að Selfyssingar sáu aldrei til sólar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Víkingur 42-30 | Stjarnan fer með sigur í farteskinu í rimmu við ÍBV
Stjarnan fór með sannfærandi sigur af hólmi þegar liðið fékk Víking í heimsókn í TM-höllina í lokaumferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Fram 23-26 | Fram tókst að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni
Fram tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í lokaumferð úrvalsdeildar karla í handbolta fyrr í kvöld er þeir sigruðu Aftureldingu í hörkuspennandi leik í Mosfellsbæ fyrr í kvöld. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari náði Fram forskotinu. Niðurstaðan var þriggja marka sigur Fram, 23-26.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta 33-28 KA | Grótta sótti sigur
22. og jafnframt síðasta umferð í Olís-deildar karla í handbolta fór fram í kvöld. Út á Seltjarnesi tók Grótta á móti KA. Lauk leiknum með fimm marka sigri heimamanna eftir sveiflukenndan leik, 33-28.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 32-31 | Haukar sigruðu Hafnarfjarðarslaginn
Haukar sigruðu nágranna sína í FH í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. FH-ingar voru með forystuna bróðurpart fyrri hálfleiks en Haukar snéru blaðinu við undir lok fyrri hálfleiks og héldu forystunni út allan leikinn. Lokatölur 32-31.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Fram 24 – 17 Valur | Fram er deildarmeistari
Fram er deildarmeistari Olís-deildar kvenna í handbolta eftir sjö marka sigur á Val.

„Meiri árangur að verða deildarmeistari heldur en bikarmeistari“
Stefán Arnarson, þjálfari Fram, var í skýjunum eftir sjö marka sigur á Val 24-17. Fram tryggði sér deildarmeistaratitilinn og þykir Stefáni afar vænt um þennan bikar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar 27–27 ÍBV | ÍBV fær heimavöll í úrslitakeppninni
ÍBV tryggði sér fjórða sætið í Olís-deild kvenna í eftir að liðið gerði jafntefli við Hauka á Ásvöllum, 27-27.

Hörður tryggði sér sæti í Olís-deild karla í fyrsta skipti í sögunni
Hörður frá Ísafirði tryggði sér sæti í Olís-deild karla í handbolta í kvöld með sex marka sigri gegn Þór Akureyri, 25-19. Þetta verður í fyrsta skipti í sögunni sem félagið mun leika í efstu deild í handbolta.

Selfyssingar tryggðu sér sæti í Olís-deild kvenna
Selfoss mun leika í Olís-deild kvenna eftir að liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Grill66-deildinni með öruggum tólf marka sigri gegn ÍBV U í kvöld, 37-25.

Vonast til að vera klár fyrir leikina mikilvægu gegn Austurríki
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson lék ekki með Valsmönnum er þeir unnu Hauka í Olís-deild karla í handbolta. Hann fékk skot í höfuðið á æfingu og verður frá næstu daga. Markvörðurinn knái gerir sér þó vonir um að ná landsleikjunum gegn Austurríki í næstu viku.

Umfjöllun og viðtöl: KA 25-30 Selfoss | Selfoss sótti sigur á Akureyri
Næst síðasta umferð Olís deildar karla fór fram í kvöld. Mikið var undir í KA heimilinu þar sem heimamenn gátu tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem og þeir gerðu þrátt fyrir fimm marka tap á móti Selfoss 25 - 30, þar sem Grótta tapaði með einu í eyjum er KA öruggt í úrslitakeppnina.

Halldór Jóhann Sigfússon: Þetta var bara alvöru hiti
„Það er mjög gott að hafa unnið leikinn, við spiluðum að mörgu leiti mjög góðan fyrri hálfleik aftur svipaður og í síðasta leik,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari Selfoss eftir fimm marka sigur á KA í KA heimilinu í kvöld, lokastaða 25 - 30.

„Mamma og pabbi blóta mér alltaf fyrir heimskulegar brottvísanir“
Valur tyllti sér á toppinn eftir sex marka sigur á Haukum 40-36. Róbert Aron Hostert, leikmaður Vals, var afar ánægður með sigurinn.

„Afar skemmtilegur handboltaleikur“
Selfoss vann eins marks sigur 32-31 í spennutrylli. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var afar ánægður með sigurinn.

ÍBV sneri leiknum við í síðari hálfleik
ÍBV vann fimm marka sigur á Stjörnunni í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 29-24.

„Seinni hálfleikur með því slakasta sem ég hef séð“
Afturelding tapaði fyrir Val 18-26. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var afar svekktur með síðari hálfleik liðsins og fannst honum Afturelding einfaldlega brotna.

Halldór Jóhann: Ekki auðveldur leikur
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss í handbolta var sáttur við sjö marka sigur á móti Víking í kvöld.

Snorri Steinn: Héldum haus allan leikinn
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var ánægður með hvernig Valur svaraði vonbrigðunum gegn FH í síðustu umferð.