Hér er um að ræða tímamótasamning hvað varðar allan fréttaflutning af keppninni og umfjöllun um hestamennsku. Með samningi þessum er verið að færa hestamennskuna í sjónvarpi og vef upp á nýtt plan þar sem tryggð verða hámarksgæði á útsendingunum. Öll keppnisröðin verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 sport sem og í gegnum netið í háskerpugæðum fyrir alla hestaunnendur bæði nær og fjær.
Stöð2 Sport mun einnig verða með sérstaka umræðuþætti um keppnisröðina áður en keppnistímabilið 2014 hefst og þá fer einnig fram umræðuþáttur á stöðinni eftir hverja keppni í vetur.
Samstarfsamningurinn var undirritaður í dag á Nauthól við Nauthólsvík en eftir undirritun sýndu nokkrir gæðingar listir sínar í snjónum.
Á mótaröðinni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum er keppt í fjórgangi, fimmgangi, gæðingafimi, tölti, skeiðgreinum úti, saktaumatölti og skeiði en hún fer fram í Ölfushöllinni. Fyrst verður keppt í fjórgangi 23. janúar næstkomandi.
Guðmundur F. Björgvinsson vann einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni 2013 með 47,5 stig en hann var einnig valin fagmannlegasti knapinn af áhorfendum. Lið Top Reiter/Ármóts sigraði liðakeppnina og var einnig valið skemmtilegasta liðið af áhorfendum.
Hér er hægt að fá upplýsingar um keppni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum.





