
Öryggismál fyrirtækja – ábyrgð stjórnenda
Þessar prófanir hafa auðvitað sín takmörk og ber að umgangast þær þannig, en væntanlega eru allir sammála því að vilja ekki hafa á vinnustað sínum aðila sem er undir áhrifum eða í reglubundinni neyslu hvort heldur sem er áfengis eða vímuefna. Undirritaður hefur margra ára reynslu að því að nota slík próf við heilsufarsskoðanir og af innleiðingu þeirra á vinnustað og er almennt hlynntur notkun þeirra sem hluta af heildarsýn í öryggis- og heilbrigðismálum fyrirtækja.
Þegar við horfum til þess hversu stórum hluta ævi okkar við verjum á vinnustað og hversu miklar hættur geta leynst víða í jafnvel hinu saklausasta umhverfi skiljum við hversu mikilvægt er að taka á öryggismálum af festu og skynsemi og með langtímamarkmið í huga. Þetta eru engin átaksverkefni í þeim skilningi heldur stefnumótun sem þarf að hríslast um allt fyrirtækið og ná til allra starfsmanna, helst með þeim hætti að hafa áhrif á vanahegðun. Slíkt er á ábyrgð stjórnenda og yfirmanna, sem þurfa að vera fyrirmyndir í einu og öllu við útfærslu og skipulag slíkrar nálgunar.
Röng nálgun
Stjórnendur horfa mikið til kostnaðar og umfangs við innleiðingu öryggis-, heilsu- og umhverfisstefnu og má með sanni segja að tilhneigingin til að gefa einhvern afslátt af öryggi er nær ávallt drifin áfram í sparnaðarskyni. Slíkt er vel skiljanlegt í rekstri almennt að horfa á alla möguleika sem eru til staðar til hagræðingar. Sú nálgun er þó í öllum tilvikum röng að mínu mati þegar horft er til lengri tíma, sem verður að vera sjónarmiðið þegar við nálgumst þennan málaflokk almennt.
Það tók langan tíma að sannfæra fólk um að nota bílbelti á sínum tíma og þurfti meira að segja að sekta þá aðila til hlýðni og fá þá til að breyta vana sínum til hins betra. Í dag efast enginn um gildi bílbeltanna og megum við þakka þeim ófá lífin sem þau hafa bjargað. Hið sama gildir um æfingar sjómanna og slysavarnir, sem eru orðinn snar þáttur í menntun þeirra og enginn afsláttur er gefinn af slíku í dag. Þá var gert góðlátlegt grín að því á sínum tíma að samhæfa vinnubrögð flugmanna við stjórnun flugvéla en í dag hvarflar ekki að neinum heilvita manni að gagnrýna slíkt. Flugsamgöngur eru enda þær öruggustu í heimi vegna þeirra öryggisatriða og stefnumörkunar sem hefur gilt um árabil og er í stöðugri endurskoðun með það að markmiði að gera enn betur. Við þurfum að temja okkur svipaða nálgun almennt á vinnu okkar og umhverfi með öryggis- og heilbrigðissjónarmið í huga og hugsanlega þarf að breyta löggjöf eða reglum til að ýta undir slíka hegðun sbr. bílbeltanotkunina forðum.
Ef við horfum til kostnaðar við að breyta vana okkar til hins betra og að verða meðvitaðri um öryggi okkar sjálfra og þeirra sem eru í kringum okkur, hvort heldur sem er í vinnu eða í leik, er ekki nokkur vafi í mínum huga að þeim peningum er vel varið. Áætlaður kostnaður vegna vinnuslysa hérlendis hleypur á tugum milljarða króna ár hvert en rannsóknir hafa sýnt það að 3-4% af vergri landsframleiðslu vestrænna ríkja glatist vegna heilsutjóns og slysa við vinnu. Þetta er því ekkert smáatriði og ætti öllum að vera ljóst hvort sem þeir reka fyrirtæki eða ekki.
Hagsmunir okkar allra
Öryggis-, heilsu og umhverfismál eiga að vera aðalatriði í öllum rekstri, hvort sem hann er einkarekinn eða á vegum ríkisins, við eigum að gera kröfur um gæði og það á að umbuna þeim sem standa sig vel í útfærslu slíkrar stefnu og ná árangri. Stórfyrirtæki í dag gera kröfur á undirverktaka sína; ríkið á að gera slíkt hið sama og engum á að líðast að gefa neina afslætti þegar við horfum til öryggissjónarmiða. Nú þegar tíðkast til dæmis að gefa afslátt við tjónleysi í ökutækjatryggingum, en slíkt er einnig að ryðja sér rúms í fyrirtækjatryggingum. Það mætti einnig hugsa sér frekari hvata af hálfu ríkisins í formi einhvers konar ívilnana. Það er vel þekkt að samkeppnishæfi fyrirtækja sem leggja mikla áherslu á þessi málefni og kosta til þess fjármunum getur verið bæði betra en einnig lakara og það er afleitt ef svo er, við þurfum að sjá til þess að það sé hagur í því að hugsa um fólkið okkar!
Ég kýs að líta svo á að þetta séu hagsmunir okkar allra og vil því hvetja einstaklinga til að velta þessum málum fyrir sér og koma á úrbótum sé þeirra þörf. Stjórnendur bera ábyrgð á að hlutirnir séu í lagi og þeir munu ekki skorast undan henni, þvert á móti ber að fagna því hversu vel hefur tekist til á undanförnum árum og áratugum. Betur má þó ef duga skal.
Skoðun

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Flugan í ídýfunni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar

Að mennta til lífs, ekki prófa
Sandra Sigurðardóttir skrifar

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar