
Gunnar: Trúi því að ég muni vinna eins og alltaf

Það verða margir um hituna í þessum flokki og UFC fjallar um það í vikunni. Þá nefnir síðan átta öfluga kappa og segir að þar rétt fyrir utan sé Gunnar okkar Nelson.
"Síðan Georges hætti þá þarf kannski færri bardaga til þess að komast í titilbardaga. St-Pierre var meistari lengi og var frábær meistari," sagði Gunnar við UFC.com.
Áhugamenn um íþróttina bíða mjög spenntir eftir því að sjá Gunnar um helgina gegn Omari Akhmedov sem er gríðarlega öflugur og hugsanlega sá besti sem Gunnar hefur mætt til þessa.
Hann er búinn að vinna ellefu bardaga í röð en þetta er aftur á móti aðeins þriðji bardagi Gunnars í UFC.
"Hann er mjög kröftugur og lætur andstæðinginn finna fyrir því. Það er mikill kraftur í honum en hann hefur sína veikleika eins og allir," segir Gunnar og bætir við.
"Eins og ég hef sagt áður þá verð ég í hringnum, ég mun aðlagast aðstæðum, ég mun bregðast við og ég trúi því að ég muni vinna eins og alltaf."
Tengdar fréttir

Leiðin að búrinu: Gunnar Nelson vs. Omari Akhmedov
Nú er aðeins vika í stærsta bardaga Íslandssögunnar! Gunnar Nelson berst gegn hinum rússneska Omari Akhmedov þann 8. mars í London og er bardaginn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Síðasta æfing Gunnars á Íslandi
Það er heldur betur farið að styttast í bardaga Gunnars Nelson í London. Hann fer fram þann 8. mars næstkomandi.

Gunnar Nelson flaug til London í morgun | Þriðji UFC-bardaginn handan við hornið
Gunnar Nelson er mættur til London þar sem hann berst við Rússann Omari Akhmedov á laugardaginn.

Gunnar í sínu besta formi
Bardagakappinn Gunnar Nelson verður í eldlínunni laugardaginn 8. mars þegar hann stígur í búrið í sínum þriðja UFC-bardaga. Hann berst við Omari Akhmedov frá Rússlandi í London og bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Fjórir bardagakappar sem vert er að fylgjast með á laugardaginn
Margir aðrir frábærir bardagamenn berjast á laugardaginn þegar Gunnar Nelson mætir Omari Akhmedov.

Gunnar Nelson einn af tíu bestu ósigruðu mönnunum í UFC
Gunnar snýr aftur í búrið í London 8. mars þegar hann berst í London gegn öflugum Rússa.

Greining á Omari Ahkmedov, andstæðingi Gunnars
Það styttist óðum í stærsta bardaga Íslandssögunnar þegar Gunnar Nelson snýr aftur í búrið og mætir Rússanum ógurlega, Omari Akhmedov, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. En hver er þessi Akhmedov og hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar hans?

Þjálfari Gunnars Nelson: Enginn stjórnar sjálfum sér betur en Gunnar
Gunnar Nelson er á leiðinni til London þar sem hann mætir Rússanum Omari Akhmedov í UFC-bardaga í í O2 Arena um næstu helgi. Akhmedov hefur ekki tapaða bardaga eins og Gunnar. John Kavanagh, írskur MMA-þjálfari Gunnars, ræddi við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

Gunnar: Nauðsynlegt að hlusta á líkamann
Það er mikið fjallað um Gunnar Nelson í aðdraganda bardaga hans gegn Omari Akhmedov sem fer fram í London á laugardag.