

MMA
Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Fimm ára fangelsi fyrir að reyna að myrða meintan barnaníðing
Fyrrum UFC-meistarinn Cain Velasquez var í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að reyna að drepa mann sem er grunaður um að hafa brotið á fjögurra ára syni bardagakappans.
Fréttir í tímaröð

„Ég er auðvitað ekkert eðlilega stolt“
„Ég segi alltaf við hann að muna að hafa gaman að þessu líka rétt fyrir bardaga,“ segir sálfræðingurinn Fransiska Björk sem er kona MMA kappans Gunnars Nelson. Fransiska er nýkomin heim frá London með sínum heittelskaða eftir vægast sagt viðburðaríka helgi þar sem Gunnar laut rétt svo í lægra haldi fyrir Kevin Holland eftir æsispennandi bardaga.

Mourinho mætti á bardagakvöldið hjá Gunnari
Margt var um manninn í O2-höllinni í London í gær þar sem bardagakvöld UFC fór fram. Gunnar Nelson var á meðal keppenda en í stúkunni sat einn frægasti fótboltaþjálfari heims.

Gunnar Nelson í frábæru standi í Króatíu
Íslenski UFC bardagakappinn Gunnar Nelson undirbýr sig nú af kappi í Króatíu fyrir endurkomu sína í búrið í mars næstkomandi.

Fullt hús hjá Mjölni í Skotlandi
Keppendur úr Mjölni stóðu í ströngu um síðustu helgi þegar fjórir þeirra tóku þátt í Goliath Fight Series MMA keppninni í Skotlandi á laugardagskvöldið.

Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson
UFC bardagakappinn Gunnar Nelson á ekki von á því að komandi bardagi hans í London verði hans síðasti á atvinnumannaferlinum. Andstæðingur hans í komandi bardaga er af skrautlegri gerðinni og leiðist ekki að tala við andstæðinga sína í búrinu. Gunnar vonar að hann tali um eitthvað sem hann hefur áhuga á.

UFC-bardagakappi sagði að Hitler hefði verið fínn gaur
Bryce Mitchell, sem berst í UFC, kom sér í mikið klandur með ummælum í hlaðvarpi sínu. Þar sagði hann að Adolf Hitler hefði verið fínn gaur og afneitaði Helförinni.

Gunnar mætir Kevin Holland í búrinu í London
Gunnar Nelson mun að öllum líkindum mæta Kevin Holland í bardagabúrinu á vegum UFC á O2 leikvanginum London þann 22.mars næstkomandi.

Taylor Swift íhugaði að skipta um nafn
Nafnið Taylor Swift kemur ekki bara við sögu í tónlistaheiminum eða í kringum NFL-deildina því íþróttamaður með sama nafn er nú að reyna að koma sér áfram í breskum bardagaíþróttum.

Bönnuðu bardaga nýnasista og gengisfélaga í Helsinki
Lögreglan í Helsinki lagði blátt bann við fyrirhuguðum MMA-bardaga hóps nýnasista og götugengis um helgina. Skipuleggjandi bardagans sagði hann „frábært tækifæri“ til að leiða hópana tvo saman.

Khabib ósáttur eftir að vera sagt að yfirgefa flugvél í Las Vegas
Bardagakappinn Khabib Nurmagomedov var er ekki par sáttur með flugfélagið Frontier Airlines en honum var vísað úr flugvél félagsins sem var á leið frá Las Vegas til San Francisco.

Conor McGregor og Logan Paul fá jafnmikið borgað fyrir bardagann
Conor McGregor og Logan Paul hafa samþykkt að mætast í hnefaleikahringnum á þessu ári en aðeins UFC getur komið í veg fyrir það að af bardaganum verði.

Telur daga McGregor í UFC talda
Óvíst er hvort eða hvenær írski bardagakappinn Conor McGregor muni snúa aftur í UFC bardagabúrið. Fyrrverandi UFC bardagakappi telur engar líkur á því að McGregor, sem nýlega var dæmdur sekur í kynferðisbrotamáli, muni snúa aftur í baradagabúrið.

Conor McGregor ætlar að berjast við YouTube stjörnu
Conor McGregor ætlar sér að snúa aftur í MMA búrið í næstu framtíð en næst á dagskrá hjá honum er hins vegar hnefaleikabardagi við YouTube stjörnuna Logan Paul.

Aron Leó með mikla yfirburði og tryggði sér beltið
Fimm bardagamenn frá Reykjavík MMA tóku þátt á bardagakvöldinu Cage Steel 38 um nýliðna helgi í Doncaster Bardagakvöldið einkenndist af áskorunum en einnig sigrum þar sem að Aron Leó Jóhannsson tryggði sér meistarabeltið í veltivigtarflokki.

Símtölum í hjálparlínuna fjölgaði mikið eftir dóm Conors McGregor
Fórnarlömb kynferðisbrota á Írlandi hafa komið fram í miklum mæli eftir að kona hafði betur í dómsmáli gegn einum frægasta íþróttamanni Íra.

Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor
Nick Miller, íþróttablaðamaður The Athletic, segir að fótboltamenn ættu að halda sig fjarri Conor McGregor eftir að hann var dæmdur til að greiða konu sem sakaði hann um kynferðisofbeldi tugi milljóna í miskabætur.

Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona
Bardagakonan Shi Ming fagnaði sigri í stórum MMA bardaga á dögunum en bardaginn var hluti af „Road to UFC tournament“ sem er forkeppni fyrir UFC bardagakvöldin.

McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur
Bardagakappinn Conor McGregor hefur dæmdur sekur í einkamáli sem var höfðað gegn honum vegna kynferðisbrots sem Írinn framdi árið 2018. Hann þarf að greina fórnarlambinu rúmlega 36 milljónir íslenskra króna í skaðabætur.

Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors
Bráðaliði sem sinnti konunni sem sakar Conor McGregor um að hafa nauðgað sér mundi ekki eftir að hafa séð aðra eins áverka á þolanda.

McGregor sakaður um nauðgun
Bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu í Dublin á Írlandi árið 2018.

McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný
Dana White, forseti UFC-bardagasambandsins, segir Conor McGregor ekki fá staðfestan keppinaut fyrr en hann er orðinn leikfær og geti gefið dagsetningu á næsta bardaga sínum.

„Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“
„Ég miklu frekar reyna fyrir mér í MMA heldur en að taka að mér eitthvað skrifstofustarf,“ segir Logi Geirsson sem náði eftirtektarverðum áfanga á dögunum.

Kyssti andstæðing í miðjum bardaga
Sérkennilegt atvik kom upp í bardaga Seans O’Malley og Merabs Dvalishvili í UFC 306 um helgina.