Upphaflega stóð til að aðeins fjórir keppendur myndu berjast á kvöldinu frá Reykjavík MMA. Þeir Hákoni Örn Arnórsson, Yonatan Francisco Romero Cruz, Jhoan Salinas og Aron Leó Jóhannsson. Skömmu fyrir bardagakvöldið bættist hins vegar Aron Kevinson í hópinn og tók þátt með aðeins klukkustundarfyrirvara eftir að einn bardagakappi kvöldsins dró sig frá keppni.
Sterkt upphaf kvöldsins
Ekki er hægt að segja annað en að kvöldið hafi byrjað á bombu fyrir Reykjavík MMA þegar að Hákön Örn steig fyrstur í hringinn og rotaði Alex Tamas eftir einungis um hálfa mínútu í fyrstu lotu. „Hákon sýndi gríðarlega áræðni og nákvæmni í sínum fyrstu höggum, sem lofar góðu fyrir framtíð hans í íþróttinni,“ segir í tilkynningu Reykjavík MMA um frammistöðu Hákonar.
Erfitt kvöld fyrir Yonatan
Yonatan var næstur í hringinn og varði Bantam-belti sitt í áhugamannaflokki gegn Arnan Oliphant. Þrátt fyrir sterka byrjun á fyrstu lotu, þar sem hann reyndi að stjórna bardaganum með glímutökum, tókst Oliphant að halda honum í skefjum og sigra tvær fyrstu loturnar. Í þriðju lotu jók Yonatan ákefð sína og reyndi að snúa bardaganum sér í vil, en Oliphant hélt yfirhöndinni og sigraði með einróma dómaraákvörðun.
Stökk inn með skömmum fyrirvara
Þá var röðin komin að Aroni Kevinson sem sló til og mætti Ryan Shaw í búrinu með skömmum fyrirvara. Fyrstu tvær loturnar voru rólegar þar sem Shaw sýndi gott box og hélt Aroni á varfærnum nótum. Í þriðju lotu kom Aron þó sterkur inn og reyndi að ná rothöggi, en Shaw hélt út og vann bardagann á stigum.
Vonbrigði hjá Jhoan Salinas
Jhoan Salinas mætti Mason Yarrow og stóð sig frábærlega framan af bardaga. Hann sýndi mikla ákefð og átti yfirhöndina þar til Yarrow náði að festa hann í þríhyrningsuppgjafartaki. Þrátt fyrir góða frammistöðu endaði bardaginn með ósigri fyrir Salinas, sem var svekkjandi niðurstaða.
Stórsigur hjá Aroni Leó
Síðasti bardagi kvöldsins af hálfu Reykjavík MMA var bardagi Arons Leós Jóhannssonar, sem barðist um veltivigtartitilinn í atvinnumannaflokki og mætti þar reynsluboltanum Jonny Brocklesby. Sá átti hins vegar lítið í Aron sem var með yfirburði allt kvöldið. Aron sýndi mikla yfirvegun og stjórn, bæði standandi og í gólfinu, og kláraði bardagann með uppgjafartaki í annarri lotu. „Með þessum sigri undirstrikar Aron Leó stöðu sína sem einn efnilegasti bardagamaður Íslands og er spennandi að fylgjast með hversu langt hann getur náð,“ segir í tilkynningu Reykjavík MMA en þetta var þriðji atvinnumannabardagi Arons í MMA. Hann hefur unnið alla þrjá til þessa.