
Rússar líta til austurs eftir bandamönnum

Stjórnvöld í Rússland hafa varað vestræn ríki við því að viðskiptaþvinganir og einangrun Rússlands, vegna innlimunar Krímskaga, muni það ekki síst bitna á Evrópu sjálfri og Bandaríkjunum. Efra þing Rússlands samþykkti einróma í morgun inngöngu Krímskaga í Rússland.
Igor Sechin, einn af nánustu samstarfsmönum Pútín, hefur í vikunni ferðast um Asíu og unnið að því að styrkja samband Rússland við lönd eins og Kína og Indland.
Stuðningur Kínverja við Rússland er Vladimir Pútín, forseti Rússlands, mjög mikilvægur. Ekki eingöngu vegna þess að Kína er einnig með fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kína er einnig annað stærsta efnahagskerfi í heimi og er andvígt útbreiðslu vestræns lýðræðis, samkvæmt Reuters.
Rússar hafa um margra ára skeið reynt að semja við Kína um sölu á gasi til landsins og heimildir Reuters segja til um að undirskrift kaupsamnings sé í nánd. Líklega verður skrifað undir í heimsókn Pútín til Kína í maí.
Forsvarsmenn Gazprom, sem er í ríkiseigu, vonast til þess að selja 38 milljarða af gasi á ári til Kína. Deilur hafa þó staðið yfir verði gassins, en þvinganir vestursins á Rússa gefa Kínverjum yfirhöndina í viðræðunum.
Tengdar fréttir

Úkraínumenn draga allt herlið sitt frá Krímskaga
Stjórnvöld í Úkraínu virðast ætla að sætta sig við innlimun Krímskaga í Rússneska sambandsríkið, að minnsta kosti tímabundið og til að forðast átök, en í morgun var tilkynnt um að allt úkraínskt herlið innan landamæra Krímskaga verði flutt til Úkraínu.

Óttast að Rússar undirbúi stórfelldar hernaðaraðgerðir í Úkraínu
Eiga á hættu frekari refsiaðgerðir af hálfu Evrópusambandsins.

Utanríkisráðherra staðfestir þvingunaraðgerðir
Utanríkisráðherra fordæmir innlimun Rússlands á Krím og ítrekar fyrri yfirlýsingar sínar um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar sem fór fram 16. mars um að Krímskagi skyldi verða hluti af Rússlandi.

„Samskipti Íslands og ESB enn í öndvegi“
Forsendur hafa þó breyst. Farsælt samstarf Íslands og ESB snýst um EES-samstarfið.

Skora á Alþingi að virða niðurstöðuna á Krímskaga
„Pútín ætti að vera tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels fyrir að efna til kosninganna,“ segir Ástþór Magnússon.

Réðust inn í bækistöðvar sjóhersins
Grímuklæddir rússneskumælandi hermenn réðust inn í bækistöðvar úkraínska sjóhersins á Krímaskaga. Tugir þúsunda hermanna undir stjórn Rússa á svæðinu.

Nýr ríkissaksóknari Krímskaga vekur athygli
Myndir af Natalia Poklonskaya fara um internetið eins og eldur í sinu.

Gunnar Bragi utanríkisráðherra á leið til Úkraínu
Gunnar Bragi Sveinsson fer í opinbera heimsókn til Úkraínu í dag þar sem hann mun ræða við stjórnvöld um ástandið í landinu. Hann staðfesti í gær þvingunaraðgerðir gegn þeim sem tengjast aðgerðum Rússa á Krímskaga.

Útilokar ekki refsiaðgerðir gegn rússneska hagkerfinu
Bandaríkin munu beita frekari refsiaðgerðum gegn einstaklingum í Rússlandi vegna deilunnar um Krímskaga, bæði innan ríkisstjórnarinnar og utan hennar.