
Pírati talar fyrir miðstýringu
Það sem heillaði mig mest við þennan nýja flokk var að hann fyllti upp í hugmyndafræðilega eyðu í íslenskum stjórnmálum. Eyðu sem ég upplifði sjálfan mig í; róttækt frjálslyndi og róttækt lýðræði. Eitt af því sem var stanslaust talað um á meðal Pírata var biturt hatur þeirra á allri miðstýringu. Hatur sem ég deildi og deili enn. Miðstýring er í eðli sínu eitur gegn lýðræði og frelsi. Einstaklingar geta aldrei verið raunverulega frjálsir ef að þeim er stjórnað af alráðandi ríkisvaldi og samfélög munu aldrei vera lýðræðisleg ef að þau þurfa alltaf að lúta æðra yfirvaldi.
Þetta er ídealíska hliðin af þessari afstöðu. Svo er það praktíska hliðin. Valddreifing virkar einfaldlega betur. Skólayfirvöld vita betur hvað er best fyrir sinn skóla heldur en Menntamálaráðuneytið, bæjarstjórn veit betur hvað er betra fyrir sinn bæ heldur en ríkið og einstaklingurinn veit betur hvað er best fyrir sig heldur en öll yfirvöld. Þetta er það sem Píratar hafa staðið fyrir og þetta er það sem ég stend nú fyrir undir merkjum Dögunar og umbótasinna.
Vegna þessarar skýru afstöðu Pírata gegn miðstýringu var ég mjög hissa hvað oddviti Pírata í Kópavogi, Ingólfur Árni Gunnarsson hafði að segja um húsnæðismál í Speglinum í Ríkisútvarpinu síðastliðinn miðvikudag.
Hann sagði að hann teldi ekki að húsnæðismál ættu að vera leyst á sveitastjórnarstigi, heldur ætti ríkisvaldið að hafa meiri aðkomu að þeim.
Oddviti Pírata í Kópavogi vill semsagt taka húsnæðismál frá sveitafélaginu og gefa völdin til æðra ríkisvalds. Hann talar hreint og beint fyrir aukinni miðstýringu í þessu málefni. Fyrir utan það að þessi hugmynd fjarlægi þetta mikilvæga málefni lengra frá fólkinu með því að setja ákvörðunartökuna hærra í valdstigann, þá fellur hugmyndin í allri praktík. Húsnæðismál eru óaðskiljanleg skipulagsmálum og bæjarskipulag verður augljóslega að vera í höndum bæjarfélagsins. Þessi hugmynd er stórkostlega undarleg í alla staði.
Við á T-lista Dögunar og umbótasinna viljum færa valdið til fólksins, ekki til ríkisvaldsins. Dögun hefur alltaf lagt áherslu á húsnæðismál og við umbótasinnarnir sem áður voru sjóræningjar viljum sporna gegn miðstýringu til að styrkja sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga. Við lítum á húsnæði sem sjálfsagðan rétt allra og teljum að það sé skylda okkar sem samfélags og sem bæjarfélags að tryggja þennan rétt.
Að lokum vill ég nefna eitt annað sem hann sagði sem skyldi eftir vont bragð í munninum á mér. Þegar hann var spurður um efnahagsmál sagði hann að það væru nánast allir að boða aukin útgjöld, en fólk ætti eftir að svara hvar það ætlaði að taka þessa peninga.
Svona orð eru hreinlega ekkert annað en mantra íhaldsins. Píratar mega auðvitað vera eins íhaldssamir og þeir vilja, enda er ekkert í stefnu Pírata sem bannar það. En sem einn af stofnendum Pírata í Kópavogi veldur þetta mér miklum vonbrigðum, því að þetta er ekki flokkurinn sem ég vildi stofna. Ég vill því persónulega biðja Kópavogsbúa afsökunar á að hafa stofnað annan hægriflokk.
Skoðun

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar