Ryan Bader (16-4-0) gegn Rafael Cavalcante (12-4-0) - léttþungavigt (92 kg)
Ryan Bader sigraði 8. seríu The Ultimate Fighter og er góður alhliða bardagamaður. Hann er klárlega á topp 10 í sínum þyngdarflokki en á erfiðleikum með þá allra bestu. Hann tapar fyrir þeim allra bestu líkt og töpin gegn Jon Jones, Lyoto Machida og Glover Teixeira sýna en sigrar flesta aðra. Rafael „Feijao“ Cavalcante er fyrrum Strikeforce léttþungavigtarmeistarinn en þessi 34 ára Brasilíumaður er svart belti í brasilísku jiu-jitsu. Hann er engu að síður sterkari í standandi viðureign og gæti lent í vandræðum ef Bader dregur bardagann í gólfið. Stuttan kynningarþátt um Bader og „Feijao“ má sjá hér að ofan.
3 atriði til að hafa í huga
- Bader er mjög opinn fyrir höggum standandi en það er hans langstærsti veikleiki
- 11 af 12 sigrum „Feijao“ komið eftir rothögg
- Bader er frábær glímumaður en Feijao ætlar líklegast halda bardaganum standandi.
Andrei Arlovski var UFC þungavigtarmeistarinn árið 2005 og verður þetta fyrsti bardagi hans í samtökunum síðan 2008. Eftir að Arlovski yfirgaf UFC lenti hann í slæmri taphrynu þar sem hann var rotaður þrisvar á tveimur árum. Hann hefur síðan þá snúið við blaðinu og hefur unnið 6 af síðustu 8 bardögum.
MMA ferill Brendan Scaub var ekki einu sinni byrjaður þegar Arlovski ákvað að yfirgefa UFC en Schaub hefur barist frá árinu 2008. Hann kom í UFC í gegnum The Ultimate Fighter þar sem hann tapaði í úrslitunum fyrir Roy Nelson. Síðan þá hefur ferill hans verið misjafn og hlaut sérstaklega neikvæða athygli eftir glímu sína á Metamoris þar sem hann sótti lítið sem ekkert.
3 atriði til að hafa í huga
- Báðir bardagamenn eru sagðir með glerhöku (þola illa högg)
- Arlovski er gamall sambó meistari og hefur aldrei tapað eftir uppgjafartak
- Schaub hefur aðeins tvisvar farið í dómaraákvörðun á ferlinum
Fyrsti bardagi kvöldsins er í léttþungavigtinni milli Ryan Jimmo og Ovince St. Preux. Jimmo skipti úr karate yfir í MMA árið 2006 en fyrir utan einstaka spörk reynir hann umfram allt að yfirbuga andstæðinga sína með styrk sínum og heldur þeim þétt upp við búrið. Andstæðingur hans, Ovince St. Preux, er einnig líkamlega sterkur og mikill íþróttamaður. Ovince St. Preux er góður á öllum vígstöðum bardagans og blandar öllu saman í vel tímasettar fellur. St. Preux er á þriggja bardaga sigurgöngu en sigurvegarinn hér gæti komist á topp 10 á styrkleikalista UFC í léttþungavigtinni með sigri á laugardaginn.
3 atriði til að hafa í huga
- Samanlagt með 15 sigra eftir rothögg
- Hvorugur hefur tapað með uppgjafartaki
- Ryan Jimmo á fljótasta rothöggið í sögu UFC en hann rotaði Anthony Perosh eftir 7 sekúndur