
Ekki í mínu nafni
Ég man einnig eftir samtali milli mín og afa míns heitins um Helförina. Það eru ótal spurningar sem vakna þegar stálpað barn reynir að skilja óskiljanlega hegðun. Um leið og ég þakkaði fyrir að hafa ekki fæðst á þessum tíma fann ég til skammar og spurði afa af hverju hann og hans kynslóð hefðu ekki gert neitt. Þau voru jú á besta aldri þegar þessu ósköp gengu yfir. Ég man líka eftir þunganum sem færðist yfir rödd hans þegar hann sagði mér að þau hefði ekki vitað fyrr en síðar hversu mikil viðbjóður átti sér stað. Ég hafði samúð með afa og hans kynslóð, hugsaði um hvað það hlyti að vera sárt að vita til þess að eitthvað jafn viðurstyggilegt og Helförin hefði átt sér stað á sama tíma og þau lifðu.
Þökk sé Internetinu vitum við, ólíkt fyrri kynslóðum, nákvæmlega hvað er í gangi í Palestínu í dag. Við vitum tölu látinna beggja megin, aldur og áhugamál barna sem aflífuð eru á okkar tíma. Núna. Myndir berast okkur samdægurs af sundurtættum barnslíkömum. Samt situr alþjóðasamfélagið hljótt hjá. Kurteislegt bréf til yfirvalda í Ísrael er góð byrjun en þarf að fylgja eftir af hörku.
Það er Helför í gangi í dag, núna. Ég líki þessu saman við jafn skelfilegan atburð og Helförina vegna þess að í mínum huga eru þetta ekki deilur og ekki stríð. Í deilum og stríði takast tveir eða fleiri á með tiltölulega jöfnum styrk. Í þjóðarmorði eru eittþúsund sjöhundruð og sextán Palestínumenn, að stórum hluta börn, drepin með köldu blóði á móti sextíu og þremur Ísraelum. Allt eru þetta jafn verðmæt líf, þó öðru megin séu það þjálfaðir hermenn sem falla (utan þriggja) en óbreyttir borgarar og börn að stórum hluta hinum megin. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ísraelsher fer í þjóðarhreinsun á Palestínumönnum, og ekki það síðasta ef alþjóðasamfélagið vaknar ekki og þvingar Ísrael til að virða alþjóðalög.
Við ráðum því ekki á hvaða tíma við lifum, og bara að hluta til getum við stjórnað í hverju við lendum. En við ráðum því alltaf hvernig við bregðumst við. Það langar engan að verða vitni að morði né bera vitni í morðmáli. Það segir sig sjálft að gerandinn gæti verið okkur hættulegur. En ef þú á annað borð ert vitni, stendur valið annarsvegar um að vera heigullinn, taka ekki afstöðu og bera ekki vitni eða gera það sem rétt er, þótt það sé óþægilegt. Hvernig ætlum við að svara barnabörnum okkar? Jú, við vissum nákvæmlega hvaða hryllingur væri í gangi og jú, við reyndum allt sem við gátum. Hvað? Við sendum kurteist bréf.
Aðgerðaleysi er afstaða. Það er í raun ákvörðun um að gera ekki neitt. Það er óttinn við að bera vitni og verða fyrir óþægindum því gerandinn er valdamikill. Það er þá skjalfest hér með að það er ekki í mínu nafni. Ég vil að við slítum stjórnmálasambandi við Ísrael. Núna.
Höfundur hefur dvalið í Ísrael og Palestínu, hefur skrifað BA- ritgerð í HHS (heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði) um málefni Palestínu/Ísraels og hefur lært sögu Vestur-Asíu við Christ college í Bangalore.
Hlédís Sveinsdóttir.
Skoðun

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar