
Ríkisstjórnin gegn fólkinu
Landspítalinn
Læknar flýja land og skurðlæknar ætla í verkfall! Ríkisstjórnin fæst ekki til að opna á byggingu nýs Landspítala. Því á að fresta um óráðinn tíma. Af hverju? Vegna lækkunar veiðigjalda og niðurfellingar á auðlegðarskatti? Vegna skuldaniðurfellinga sem ganga ekki síður til þeirra efnamiklu og neyslufreku en þeirra sem gætu þurft á þeim að halda en þeir sem minnst eiga og taka ekki einu sinni húsnæðislán liggja óbættir hjá garði? Eða á að láta þjóðina fyllast skelfingu yfir stöðunni á heilbrigðissviði og fara svo að viðra sölu á Landsvirkjun eða öðrum eignum okkar allra? Á að tefla fram hjúkrun og lækningum á einkasjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum fyrir þá efnameiri. Einu sinni áttum við Símann, öll í sameiningu en stjórnarflokkarnir seldu hann. Til hvers? Jú, til að byggja Landspítala! Hátæknisjúkrahús!
Dómsmálin
Og svo eru það dómsmálin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur glutrað þeim niður og embætti sérstaks saksóknara er í hættu. Réttarkerfið er í hættu. Liggur fyrir faglegt mat á því að það sé óhætt að skera niður fjárveitingar til sérstaks saksóknara? Var ekki þjóðarsátt um að ganga úr skugga um lagalegt réttlæti og láta þá fjárglæframenn sem það eiga skilið sæta ábyrgð? Á að skilja klárinn eftir í miðri á? Aðförin að sérstökum saksóknara sem nú blasir við í fjárlagafrumvarpinu verður ekki liðin. Embætti hans þarf að fá að ljúka sínum verkum, annað er einfaldlega fráleitt.
Fjármunir færðir af sanngirni
Við í VG höfum lagt fram frumvarp á Alþingi um breyttan og bættan auðlegðarskatt næstu fimm ár í stað þess að leggja hann niður. Með því má byggja spítala okkar allra og leggja grunn að heilbrigðiskerfi sem þjóðin getur verið stolt af næstu áratugi. Betri fjárfestingu er varla hægt að hugsa sér. Og það þarf að taka til hendinni víðar. Veiðigjöldin þurfti að sníða betur til en ekki lækka, ferðamenn geta greitt komugjöld til að verja náttúruna skemmdum og ferðaþjónustan á að borga skatt af sínum virðisauka. Fjármunir teknir af sanngirni og færðir þangað sem þeirra er mest þörf með hagsmuni allra að leiðarljósi eru ekki dautt fé, heldur krónur sem færast úr einum vasa í annan rétt eins og aðrar krónur sem bera uppi atvinnulíf og viðskipti, þjónustu og menningu í nútímasamfélagi.
Stendur lýðveldið undir nafni?
Stefna ríkisstjórnarinnar er hægristefna, snýst um klíkustjórnmál og niðurrif í þágu einkavina og það er hættulegt. Lýðveldi sem ræður ekki við heilbrigðismálin og skilur dómskerfið eftir í uppnámi stendur ekki undir sjálfu sér, stendur ekki undir nafni. Ríkisstjórn sem hatast við launafólk, jafnt á almennum vinnumarkaði og í almannaþjónustu, sem skilur ekki fólkið sem þurfti að standa af sér allt fjárglæfrabröltið og bera uppi samfélagið þessi erfiðu ár, sú stjórn er ekki á vetur setjandi. Við þurfum aðra og betri ríkisstjórn, stjórn sem vinnur með fólki en ekki gegn því.
Skoðun

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar