
Biður enga afsökunar á lekamálinu

Af yfirlýsingunni verður heldur ekki ráðið að hún telji þörf á því. Hún segist hætta vegna þess vantrausts og þeirrar tortryggni sem hún segir að séu enn til staðar vegna lekamálsins:
„Tortryggni og vantraust vegna málsins eru enn til staðar og ákveðnir aðilar og öfl geta og munu áfram halda uppi efasemdum og ásökunum vegna þess.“
Í yfirlýsingunni segir Hanna Birna að svona sé í pottinn búið þrátt fyrir að hún hafi frá byrjun reynt að vanda til verka í öllu því sem tengdist lekamálinu. Hún hafi ávallt brugðist við með þeim hætti sem hún taldi satt og rétt. Hún hafi meðal annars vikið aðstoðarmanni sínum frá störfum og síðar sagði hún sig frá verkefnum dómsmálaráðherra.
Þá segir hún jafnframt að búið sé að draga of marga inn í málið með ósannindum, meðal annars núverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Eins og kunnugt er sendi hún Gísla Frey Valdórssyni, þáverandi aðstoðarmanni Hönnu Birnu, greinargerð um rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum um mál Tony Omos. Persónuvernd hefur óskað eftir gögnum frá lögreglunni á Suðurnesjum vegna samskipta Sigríðar og Gísla.
Hanna Birna gerir jafnframt að umtalsefni það sem hún kallar „illskuna í umræðunni“. Segist hún ekki hafa trúað því að hún yrði svo mikil eða að hún fengi jafnmikið á hana og raun ber vitni.
„Undanfarið ár hefur verið mér pólitískt og um leið persónulega erfitt. Síðast fyrir nokkrum dögum þurftum við fjölskyldan að ræða um dylgjur dagsins, útskýra fyrir fjölskyldu og vinum að það sé allt í lagi með okkur og tryggja svo að dætur okkar lesi ekki meiðandi og mannskemmandi ummæli í ýmsum fjölmiðlum. Við hjónin ákváðum þá að slíkar fjölskyldustundir væru einfaldlega orðnar of margar.“
Í lok yfirlýsingarinnar segir Hanna Birna svo að hún muni ekki veita fjölmiðlaviðtöl í dag. Hún ætli að verja næstu dögum með fjölskyldunni.Hún ætli að taka sér frí frá Alþingi og varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum til áramóta.
Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi innanríkisráðuneytisins, sagði við fjölmiðla í dag að hann byggist við að hún myndi tjá sig eftir helgi.
Tengdar fréttir

Einar og Ragnheiður líklegustu arftakar Hönnu Birnu
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru umræður um mögulegan arftaka Hönnu Birnu þegar hafnar innan Sjálfstæðisflokksins.

„Þegar litið er yfir árið vona ég að einhverjir skammist sín“
Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður DV, fagnar afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra.

Gísli Freyr fékk senda skýrslu um yfirheyrslu yfir Tony Omos
Leit svo á að hann hafi fengið upplýsingarnar með samþykki Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Svona var atburðarásin í lekamálinu
Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.

Hanna Birna: Ákvörðunin persónuleg en ekki pólitísk
Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sagt af sér embætti innanríkisráðherra. Hún mun þó áfram sitja sem þingmaður og segist þannig ætla að axla ábyrgð.

Óska skýringa vegna sendingar upplýsinga um Omos
Persónuvernd hefur sent lögreglunni á Suðurnesjum bréf þar sem óskað er eftir skýringum varðandi sendingu Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur til Gísla Freys.

Bjarni Ben: „Þetta er áfall fyrir okkur öll“
"Aðalatriði málsins eru þau að það er nú upplýst að sá sem treysti á sanngjarna málsmeðferð í dómsmálaráðuneytinu fékk ekki slíka meðferð,“ segir Bjarni.

Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í samtali við fréttastofu að víðtækur stuðningur við ráðherrann væri innan þingflokksins.

Gísli Freyr: „Aldrei getað sætt mig við sýknudóm“
Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag.

Sigríður segir Gísla hafa beðið um upplýsingar um Omos
Átti í samskiptum við Gísla Frey Valdórsson eftir að frétt upp úr minnisblaði ráðuneytisins var birt. Í þeim samskiptum bað hann um að fá gögn um hælisleitanda.

„Ég ber ekki ábyrgð á lögbrotum“
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segist bera pólitíska ábyrgð á sínum undirmönnum en hún beri hins vegar ekki ábyrgð á lögbrotum. Hún segist jafnframt vera búin að segja af sér embætti.

Gísli Freyr í skilorðsbundið átta mánaða fangelsi
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hanna Birna hættir
Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér sem innanríkisráðherra í dag.

Gísli ræddi við Sigríði daginn sem gögnin voru birt
Aðstoðarmaður innanríkisráðherra átti í talsverðum samskiptum við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, daginn sem fréttir birtust byggðar á leka úr ráðuneytinu.