Leikarinn Stephen Collins hefur sent tímaritinu People langa yfirlýsingu sem birtist í heild sinni í tímaritinu næsta föstudag. Hann hefur ekki látið í sér heyra í margar vikur, eða síðan fréttasíðan TMZ setti upptöku í loftið þar sem Stephen heyrðist játa misnotkun á ungum stúlkum.
Stephen segir í yfirlýsingunni að fórnarlömbin hafi verið þrjú á árunum 1973 til 1994 en bætir við að hann hafi ekki fundið fyrir þrá til að endurtaka leikinn síðustu tuttugu ár.
„Ég gerði svolítið hræðilega rangt fyrir fjörutíu árum sem ég sé mjög mikið eftir. Ég hef reynt að bæta fyrir það síðan. Ég hef ákveðið að tala um þetta opinberlega því fyrir tveimur mánuðum settu ýmsar fréttaveitur upptöku í loftið sem fyrrverandi eiginkona mín, Faye Grant, gerði og var tekin upp í hjónabandsráðgjöf í janúar árið 2012. Var tíminn tekinn upp án vitundar og samþykkis hjónabandsráðgjafans eða míns,“ skrifar Stephen.
Hann ætlar að setjast niður með Katie Couric á föstudaginn í þættinum 20/20 á ABC og ræða yfirlýsinguna frekar.
„Ég gerði svolítið hræðilega rangt fyrir fjörutíu árum“

Tengdar fréttir

"Stephen er góður maður að mínu mati“
Leikkonan Catherine Hicks tjáir sig um játningu leikarans Stephens Collins.

Eiginkonan hefur ítrekað reynt að kúga út úr honum fé
Lögfræðingur Stephens Collins rýfur þögnina.

Klipptur út úr Scandal vegna játningar um barnaníð
"Við staðfestum að við setjum ekkert efni í loftið með Stephen Collins.“

Missir hlutverk í Ted 2 í skugga játningar um barnaníð
"Ég hef oft hvatt Stephen til að leita sér meðferðar við barnagirnd,“ segir Faye Grant, eiginkona Stephens Collins.

Viðurkennir að hafa misnotað ungar stúlkur
„Það var ein stund þar sem ég snerti hönd hennar og setti hönd hennar á getnaðarlim minn,“ segir leikarinn Stephen Collins.