
Fjármögnun þjóðgarðs; er náttúrupassi rétta leiðin?
Einstakt samspil elds og íss skapar Vatnajökulsþjóðgarði mikla sérstöðu á heimsvísu og bráðnun jökulsins vitnar um hlýnun jarðar. Þjóðgarðurinn hefur því alla burði til að verða meðal hinna eftirsóttustu, hvort sem er vegna náttúruupplifunar eða sýnikennslu í loftslagsbreytingum. Forsenda árangurs er þó áframhaldandi uppbygging innviða og mannauðs. Af dýrum framkvæmdum sem ólokið er má nefna byggingu tveggja gestastofa, nokkurra landvarðabústaða og ferðamannaaðstöðu við Dettifoss, smíði fjölda göngubrúa yfir erfiðar jökulár, auk viðhalds á víðfeðmu stígakerfi þjóðgarðsins.
Nauðsynlegar, fyrirsjáanlegar framkvæmdir kosta að lágmarki þrjá milljarða króna.
Verulegur niðurskurður á framkvæmdafé og niðurfelling framlags til byggingar gestastofu þjóðgarðsins á Kirkjubæjarklaustri bendir ekki til þess að núverandi ríkisstjórn líti á uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs sem forgangsmál, með núverandi framkvæmdafé tekur hún 30–35 ár.
Eftirlitskerfi
Því eru góð ráð dýr. Mér fannst hugmyndin um skyldubundinn náttúrupassa góð við fyrstu skoðun því ógerlegt er að setja gjaldtökuhlið á allar hinar fjölmörgu heimreiðar að þjóðgarðinum. Ég er nú orðinn afhuga þessari leið og tel aðrar einfaldari og betri. Ástæðan er fyrst og fremst sú að náttúrupassi veitir sérréttindi og krefst því eftirlitskerfis á vettvangi.
Sumum kann að virðast upplagt að landverðir taki að sér eftirlit með náttúrupassa því þeir þurfi hvort sem er að hafa eftirlit með því að settum reglum sé framfylgt. Aðalhlutverk landvarða er þó að bjóða gesti velkomna, aðstoða og fræða um náttúru og menningu viðkomandi svæða. Verði náttúrupassi tekinn upp og landvörðum falið eftirlitið er hætt við að mikill tími þeirra fari í argaþras um passa og ráðstafananir ef viðkomandi er passalaus. Hvað á að gera í þeim tilvikum? Á að veita landvörðum vald til að sekta fólk á staðnum? Hvaða áhrif hefði það á ímynd þeirra, þjálfun og starfskjör? Nú má vera að ég sé að mála skrattann á vegginn en ég ber umhyggju fyrir störfum landvarða og jákvæðri ímynd þeirra. Sé hugmynd yfirvalda sú að setja upp sérstakt eftirlitskerfi – ferðalögreglu – á vettvangi er líklegt að það éti upp drjúgan hluta teknanna.
Engin ofrausn
Hið opinbera fær nú um 17 milljarða króna árlega í hreinar skatttekjur af ferðamönnum. Það virðist engin ofrausn að setja t.d. 5% af þeim tekjum í sjóð til uppbyggingar ferðamannastaða. Vilji ríkið aukna gjaldheimtu af ferðamönnum má betrumbæta gistináttaskattkerfið sem var neingallað frá upphafi eða, eins og margar þjóðir gera, innheimta af þeim komu- og eða brottfarargjald. Tvö þúsund krónur á hvern ferðamann (ein máltíð) færi langt með að fjármagna uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs á einu ári! Gjaldið legðist jafnt á alla ferðamenn, líka ráðstefnugesti, borgarferðamenn og farþega skemmtiferðaskipa. Einstök náttúra er helsta aðdráttarafl Íslands og hún er yfir og allt um kring, ekki bara á vinsælum ferðamannastöðum.
Skoðun

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar