Guðrún, sem er 34 ára gömul, hefur verið ófeimin við að skarta skeggi undanfarin ár enda sprettur það og fer sínar eigin leiðir. „Mér fannst skeggvöxturinn óþægilegur til að byrja með, það var mikil pressa á mér og margir gerðu ráð fyrir því að ég væri í hormónameðferð eftir að ég leyfði skegginu að vaxa,“ segir Guðrún.
Hún fór í leisermeðferð sem lauk fyrir um það bil þremur árum í von um að útrýma skeggvextinum. „Vöxturinn minnkaði eftir meðferðina en í dag leyfi ég skegginu að vaxa og dafna og skammast mín ekki neitt.“
Guðrún er ánægð með að sigurvegari Eurovision komi úr annars konar flóru. „Mér finnst þetta frábært, því sigur Conchitu opnar augu fólks fyrir því að fólk er ekki bara svart og hvítt. Við erum misjöfn eins og við erum mörg.“

Eins og fyrr segir litaði hún skegg sitt með eyeliner og málaði til að gera það greinilegra til heiðurs Conchitu. „Mig langaði bara að gera þetta og sá sem tjáir sig um mitt persónulega útlit á niðrandi máta og er ekki náinn mér eins og fjölskylduvinur og þess háttar, á í raun bara bágt myndi ég segja,“ segir Guðrún.
„Mér finnst frábært hvað Íslendingar eru orðnir jákvæðir og opnir og tilbúnir að fræðast um næsta í stað þess að bindast fordómum, enda eru fordómar heftandi, eins og Pollapönkarar gera sér fyllilega grein fyrir. Ég er stolt af þeim,“ útskýrir Guðrún.