

Mikil aukning vindorku í Noregi
Fyrir skemmstu skoðaði ég vindorkugarð (eða vindlund, sbr. trjálund) í Þrændalögum í Noregi. Hitra (520 km²) er ein af stærri eyjum strandlengjunnar og þar getur blásið hressilega. Íbúar Hitra eru um 4.200 talsins og starfa m.a. við laxeldi, sem er stórtækt á þessum slóðum. Eyjan er þekktur ferðamannastaður og fjöldi Þjóðverja kemur á sumrin til handfæraveiða líkt og vinsælt er hér. Tæplega sex kílómetra neðansjávargöng tengja síðan eyjuna við fastalandið og minna þau ískyggilega á okkar Hvalfjarðargöng.
Fyrir 10 árum voru reistar á miðri eyjunni, þar sem hún er hæst, 24 vindmyllur með nefhjóli í 70 metra hæð. Aflgeta hverrar er 2,3 MW og vindgarðurinn er í um 300 metra hæð á klapparholtum ofan við gisið skóglendi. Raforkuframleiðslan hefur gengið það vel að nú verður stækkað, bætt við 20 möstrum og heildaraflgetan fer í 115 MW. Orkufyrirtækið SAE vind sem rekur vindgarðinn er í 61% eigu Statkraft (hin norska Landsvirkjun) og orkufélag á vegum sveitarfélaga í S-Noregi á afganginn. Hitra er einn elsti af 11 sambærilegum vindorkugörðum í rekstri við sjávarsíðuna, allt frá Suður-Noregi og norður í Finnmörku. Reynslan er það góð að fjölmargir nýir vindlundir eru í undirbúningi. Fylkisstjórnin í Suður-Þrændalögum vinnur eftir eigin orkustefnu þar sem stefnt er að því að vindorkan verði nýtt á fáum, en stórum svæðum. Mest á lágum fjöllum í 300-400 metra hæð þar sem sýnileiki þeirra í umhverfinu þykir hvað minnstur. Stefnt er allt að 2 TWh í orkuvinnslu með vindi í fylkinu árið 2020 og ætla Norðmenn að vinnslan gæti orðið árlega 6-8 TWh í heild sinni. Til samanburðar er heildarraforkuvinnsla á Íslandi 17-18 TWh á ári um þessar mundir.
Hár framleiðslukostnaður
Fjárfesting við fjölgun vindrafstöðva á Hitra ásamt tengingum við flutningsnetið er áætluð um 760 millj. NOK. Það samsvarar um 250 millj.IKr á hvert uppsett MW vindorku. SAE vind áætlar að framleiðslukostnaður sé um 10 til 11 IKr á kWh (0,53-0.58 NOK). Ég er nokkuð viss um að á íslenskan mælikvarða þykir það frekar hátt.
En engar framkvæmdir eru án umhverfisáhrifa. Á Hitra hefur verið fylgst náið með fugladauða og þjálfaðir hundar látnir leita reglulega. Stofn rjúpu er sterkur, enda blasti við þróttmikið lynglendi hvar sem farið var um eyjuna. Starfsemin virðist ekki trufla rjúpuna, en hins vegar hafa í allt 5 hafernir fundist örendir í grennd við vindmyllurnar. Jarðvegsrask er lítið sé rétt staðið að málum og vindmyllur eru fjarlægðar eftir að þær hafa lokið hlutverki sínu. Nýting vindorku er vistvæn í öllu tilliti og rétt eins og vatnsorka losar hún ekki gróðurhúsalofttegundir.
Í annarri grein verður fjallað um möguleika á vindorku hér á landi. Bæði mikil tækifæri sem bíða okkar og þær takmarkanir sem fylgja breytilegum vindinum og samkeppnisforskoti vatnsorku og einnig jarðvarma.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar