
Hamingju hvað sem það kostar
Ekki kemur fram í fréttinni af hverju þessi hamingjuaukning Íslendinga stafar en sé rýnt í fleiri fréttir undanfarinna vikna kemur í ljós að frasinn „eins og fyrir hrun“ kemur fyrir í hverri fréttinni af annarri. Íslendingar ferðast nærri jafn mikið til útlanda og þeir gerðu fyrir hrun, fasteignaverð nálgast það sem það var fyrir hrun, fjöldi byggingarkrana í Reykjavík er orðinn helmingur af því sem hann var fyrir hrun og svo framvegis. Góðærið er á hraðri innleið aftur og hamingjan eykst í samræmi við það, að því er virðist.
Í búsáhaldabyltingunni margumtöluðu var mikið rætt um það að nú hefðu Íslendingar lært sína lexíu og það ástand sem hér skapaðist í góðærinu „fyrir hrun“ gæti aldrei skapast aftur. Nú yrði horfið til fyrri gilda og ofuráherslan á efnisleg gæði þurrkuð út úr hamingjujöfnunni. Sú spá virðist ekki hafa gengið eftir. Þjóðin vill sitt góðæri og engar refjar og virðist hvorki hafa lært eitt né neitt af hruninu og eftirköstum þess. Enda herma nýjustu fréttir að Hannes Hólmsteinn ætli sér að sanna að í rauninni megi rekja orsakir hrunsins til áhrifa erlendra mafíósa á íslenska bankamenn, svo það er varla von að þjóðin líti svo á að hún beri nokkra ábyrgð á því. Vondu útlendingarnir stóðu auðvitað á bak við þetta allt saman. Við gerðum ekkert rangt.
Að öllu gríni slepptu þá er það dálítið ógnvekjandi hversu fljótt íslenska þjóðin virðist hafa gleymt því hvað það var sem leiddi okkur í þrot haustið 2008. Sex ár eru ekki langur tími en engu að síður virðist ástandið hér eftir hrun vera horfið úr minni flestra. Fólk man bara góðu tímana fyrir hrun og þráir sitt brauð og leiki, utanlandsferðir og íbúðir á uppsprengdu verði. Þeir sem vara við því að farið sé offari í efnahagsmálum eru aftur orðnir afturhaldsseggir og íhaldskurfar og bankar frábiðja sér viðskipti þeirra sem ekki eru í góðum efnum. Enga aumingja hér, takk fyrir.
Margir lífshamingjugúrúar predika að til þess að öðlast hamingju sé vænlegast til árangurs að einblína á það góða, fyrirgefa það slæma og gleyma því sem fyrst. Þá speki virðist íslenska þjóðin upp til hópa hafa tileinkað sér eftir hrun og uppskorið hamingju í samræmi við það. Við skulum bara vona að sú hamingja reynist ekki of dýru verði keypt þegar upp er staðið.
Skoðun

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hvernig húsnæðismarkað vill Viðskiptaráð?
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar