
Hreiðar Már hefur hafið afplánun

Hæstiréttur kvað upp dóm í Al-Thani málinu í febrúar og var þá fimm og hálfs árs fangelsisdómur yfir Hreiðari Má staðfestur. Dómur yfir Sigurði Einarssyni var mildaður úr fimm árum í 4 ár.
Sjá einnig: Dómur fallinn í Al-Thani málinu: Þungur dómur yfir Hreiðari staðfestur
Dómur yfir Ólafi Ólafssyni var þyngdur úr þremur og hálfu ári í fjögur og hálft ár og þá var dómur yfir Magnúsi Guðmundssyni þyngdur úr þremur árum í fjögur og hálft ár.
Ólafur Ólafsson, fyrrum hluthafi í Kaupþingi, hefur hafið afplánun vegna dóms sem hann hlaut í sama máli en hann er kominn inn á Kvíabryggju.
Sjá einnig: Ólafur Ólafsson kominn á Kvíabryggju
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ólafur Ólafsson og Magnús Guðmundsson voru allir dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi í héraði í desember 2013 og voru dómarnir þar yfir Hreiðari og Sigurði þeir þyngstu sem fallið hafa í efnahagsbrotamáli hér á landi. Var Hreiðar dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi í héraði og Sigurður í fimm ára fangelsi.
Tengdar fréttir

Dómur fallinn í Al-Thani málinu: Þungur dómur yfir Hreiðari staðfestur
Dómur yfir Sigurði Einarssyni mildaður en dómar Ólafs og Magnúsar þyngdir.

Glórulaust Kaupþingslán
Ritstjóri Morgunblaðsins upplýsti í Reykjavíkurbréfi helgarinnar um að það hafi ekki verið ákvörðun hans að lána Kaupþingi rúman helming gjaldeyrisforða Seðlabankans 6. október 2008 heldur hafi það verið vilji ríkisstjórnar Geirs H. Haarde að lána Kaupþingi.

Ólafur Ólafsson kominn á Kvíabryggju
Ólafur Ólafsson hefur hafið afplánun vegna dóms sem hann hlaut í Al-Thani málinu svokallaða.

Bjarni vill skoða hvort tilefni sé til skaðabótakröfu á hendur slitabúi Kaupþings eftir Al-Thani dóm
Ráðherra telur hins vegar ekki atriði að birta símtal Davíðs Oddssonar og Geirs Haarde.

Hver er þessi Al Thani?
Fréttablaðið kannar sögu og bakgrunn sjeik Mohammed bin Khalifa Al Thani, þessa auðuga huldumanns sem komst í kynni við stjórnendur Kaupþings í gegnum vináttu við Ólaf Ólafsson.

Al-Thani málið: Fangar afplána fyrr ef dómar eru þungir
Páll Egill Winkel fangelsismálastjóri segir að við ákvörðun um í hvaða fangelsi menn afpláni sé tekið tillit til aldurs, kyns og brotaferils fanga.

Fara mest í níu ár í fangelsi
Nokkur dómsmál bíða Kaupþingstoppanna sem dæmdir voru í Al Thani-málinu í liðinni viku.