Innlent

„Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Oscar og Sonja, fósturmóðir hans, sem berst nú fyrir því að hann fái dvalarleyfi.
Oscar og Sonja, fósturmóðir hans, sem berst nú fyrir því að hann fái dvalarleyfi.

Frestur sautján ára kólumbísks drengs til að fara sjálfur úr landi eftir synjun um dvalarleyfi rennur út í dag. Fyrirhugaðri brottvísun var mótmælt ákaft við dómsmálaráðuneytið í dag. Prestur, sem hefur efnt til mótmæla meðal presta, segist ekki trúa öðru en að íslensk stjórnvöld sjái sóma sinn í að hætta við brottvísunina.

Oscar Anders Florez Bocanegra kom fyrst til Íslands frá Kólumbíu með föður sínum árið 2022. Faðir hans beitti hann ofbeldi og tók íslensk fósturfjölskylda hann að sér. Þeim feðgum var báðum vísað úr landi í fyrra en fósturfjölskyldan sótti Oscar til Bogatá í Kólumbíu. Frestur Oscars til að fara sjálfur úr landi rennur út í dag og hefur honum verið tilkynnt að hann geti ekki sótt aftur um vernd.

Raunveruleg umhyggja fyrir barninu

Hópur fólks mótmælti við dómsmálaráðuneytið í morgun og var áskorun um að stöðva brottvísunina afhent ráðuneytisstjóra. Þrjátíu prestar sendu þá frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fyrirhugaðri brottvísun hans var mótmælt. Sífellt bætist í hóp þeirra, og voru á hádegi í dag rúmlega fimmtíu búnir að skrifa undir yfirlýsinguna.

„Við sem kirkja við erum bundin af bæði ákveðnum siðfræðilegum grunni, biblíulegum grunni þar sem í forgrunni er að standa vörð um börn og útlendinga og elska í verki,“ segir Sigurvin Lárus Jónsson, prestur í Vídalínskirkju í Garðabæ. Vinafólk fósturfjölskyldu Oscars leitaði til Sigurvins og kallaði eftir að Þjóðkirkjan léti í sér heyra.

„Það blasir við af þeim upplýsingum sem fjölskyldan, sem skotið hefur skjólshúsi yfir þennan dreng, miðlar að hér er raunveruleg umhyggja fyrir þessu barni á ferðinni og við viljum sýna því samstöðu sem prestastétt.“

Sigurvin Lárus Jónsson, prestur í Vídalínskirkju í Garðabæ. Aðsend

Mikill skaði verið unninn

Í yfirlýsingu prestanna er vísað í vers úr Gamlatestamentinu, þar sem segir að aðkomumaður skuli njóta sama réttar og innborinn maður og að maður skuli elska náungann eins og sjálfan sig. Sigurvin segir erfitt að horfa upp á þá slæmu stöðu sem Oscar er í. Stjórnvöld verði að hætta við brottflutninginn.

„Ég trúi ekki öðru. Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva og ég trúi ekki öðru en að íslensk stjórnvöld muni veita honum dvalarleyfi og hann eigi framtíð með þessari fjölskyldu,“ segir Sigurvin. 

„Það eru gleðidagar. Páskar eru nýafstaðnir og þeir eru haldnir í ljósi upprisu Jesú Krists frá dauðum og því að sýna samstöðu með lífinu og fagna. Við skulum ekki leyfa því að spilla gleðinni að þessar aðstæður verði þannig að honum verði vísað úr landi.“


Tengdar fréttir

Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið

Hópur mótmælenda afhenti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins áskorun um stöðva brottvísun hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra. Hópurinn kom saman fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Borgatúni í morgun. Greint var frá því nýlega að til stæði að senda Oscar í annað sinn úr landi.

Gildi kær­leika og mann­úðar

Mig langar að senda nokkrar línur um mál sem varðar Oscar Anders Florez Bocanegra, 17 ára dreng frá Kólumbíu.

Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum

Kona sem sótti um að verða fósturforeldri sextán ára pilts sem vísað var úr landi í dag segir að brösuglega hafi gengið að fá að kveðja hann í úrræði ríkislögreglustjóra fyrir brottför piltsins. Hún óttast að ekkert bíði hans í Kólumbíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×