Skoðun

Alþjóðleg fjármálalæsisvika 9.-17.mars 2015

Breki Karlsson skrifar

Mikilvægi fjármálalæsis hefur líklega aldrei verið meira en nú. Á degi hverjum tökum við ákvarðanir sem móta efnahagslega framtíð okkar sem einstaklinga, fjölskyldna og þjóða. Með því að vera fjármálalæs erum við betur í stakk búin til að taka stjórna okkar eigin fjármálum og getum jafnframt veitt kjörnum fulltrúum aðhald til að taka upplýstar ákvarðanir fyrir okkar hönd. Þannig er fjármálalæsi nátengt lýðræðinu. Okkur Íslendinga virðist skorta yfirsýn yfir fjármálin. Til dæmis heldur innan við fimmtungur Íslendinga heimilisbókhald eða gerir áætlanir í fjármálum.



Ákvarðanir í fjármálum byggja í reynd ekki á neinum sérstökum gáfum eða þekkingu. Það þarf ekki að undirgangast próf til að kaupa bíl, þó það þurfi til að aka honum. Og flest okkar verða ekki fjármálalæs á bók, heldur á eigin skinni, en reynslan getur verið ansi dýrt nám.



Fjármál eru í eðli sínu einföld, en samt flókin. Þetta er þversögn sem á rætur að rekja til þess að upplýstar og meðvitaðar ákvarðanir í fjármálum eiga sér stoðir í, ekki bara einni, heldur mörgum fræðigreinum. Undirstaðan er meðal annars sótt í  stærðfræði, sögu, stjórnmál og heimspeki. Fjármálalæsismenntun einskorðast ekki við að kenna fólki á kerfið, þ.e.a.s. að ala upp „fjármálaneytendur“. Áherslan er ekki síður á uppfræðslu um réttindi og skyldur, lýðræði, ákvarðanatöku, nýsköpun og gagnrýna hugsun. Þannig verður komandi kynslóð betur í stakk búin til að taka ákvarðanir – hún verður fjármálalæs.



Alþjóðlega fjármálalæsisvikan 2015 er uppskeruhátíð sem haldin er í yfir hundrað löndum.  Markmiðið að vekja  yngri kynslóðir til vitundar um eigin fjármál og hvernig þær geta haft áhrif á efnahagslega velferð til lengri og skemmri tíma. Í annarri viku marsmánaðar ár hvert tekur ungt fólk um heim allan þátt í ýmsum verkefnum er snúa að fræðslu og umræðu um fjármál á breiðum grunni.  Fjármálalæsisvikan snýst um að tengja saman börn, ungmenni, foreldra, stofnanir, fyrirtæki og samfélagið allt og efna til vitundarvakningar um fjármál til þess að ungt fólk fái tól og tæki til að móta eigin framtíð. Fjölbreytt dagskrá verður hér á landi þessa viku, allt frá kennslu í grunnskólum, til örráðstefnu og opins húss í Seðlabankanum.



Alþjóðlega fjármálalæsisvikan er haldin að frumkvæði samtakanna Child and Youth Finance International.  Þetta er  í fjórða sinn sem hún er haldin og í annað sinn sem Ísland tekur þátt.



Um heim allan verða alls kyns uppákomur til vitundarvakningar um hvernig peningar virka, þar með talið sparnaður, tekjuöflun, atvinnutækifæri og nýsköpun.  Á Íslandi er það Stofnun um fjármálalæsi sem stendur að vikunni ásamt Fjármálaeftirlitinu, Fjármálaráðuneytinu, Kauphöllinnni, Meniga, Seðlabanka Íslands, Umboðsmanni skuldara, Viðskiptaráði, Arion banka, RÚV, Neytendastofu og Samtökum fjármálafyrirtækja. Margþætt aðkoma hagsmunaaðila frá opinbera geiranum og einkageiranum þar sem allir hafa ólíka aðkomu og framlag gefur fyrirheit um að ekki sé tjaldað til einnar nætur.  Saman endurmótum við  viðhorf okkar til fjármála og stuðlum að því að komandi kynslóðir fái í veganesti  tæki og tól til að taka skynsamar og meðvitaðar ákvarðanir í fjármálum.



Upplýsingar um Alþjóðlega fjármálalæsisviku má finna á vefnum www.fml.is og á fésbók /fjarmalavika.



Höfundur er forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×