Nýliðar Leiknis eru á toppi deildarinnar eftir glæsilega frumraun í deildinni. Þeir unnu Valsmenn, 3-0. Stórveldaslagur KR og FH var ekki mikið fyrir augað en þar höfðu FH-ingar sigur, 3-1. Eina jafnteflið var í Árbænum þar sem Fylkir og Breiðablik áttust við.
Umfjallanir og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:
Fylkir - Breiðablik 1-1
KR - FH 1-3
Keflavík - Víkingur 1-3
Valur - Leiknir 0-3
Fjölnir - ÍBV 1-0
ÍA - Stjarnan 0-1

... Ólaf Karl Finsen
Framherjinn magnaði lokaði Íslandsmótinu í fyrra með marki sem tryggði Stjörnunni Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu félagsins. Hann setti svo nýtt Íslandsmót með stórkostlegu aukaspyrnumarki í 1-0 sigri sinna manna. Eftir leik bauð hann svo upp á mest kósí viðtal í sögunnar þegar hann hélt föðurlega utan um Gaupa í beinni útsendingu.
... Leiknismenn
Nýliðarnir tóku sig til og pökkuðu Valsmönnum saman, 3-0, í fyrsta leik liðsins í efstu deild. Sigurinn er einn sá flottasti hjá nýliðum undanfarin 30 ár. Glæsileg frumraun Leiknismanna sem voru margfalt betri inn á vellinum og í stúkunni.
... Gjaldkera Fylkis
Fylkismenn íhuga nú eflaust að fresta sem flestum leikjum til að eiga heilu leikdagana fyrir sig sjálfa. Ekkert var í boði á fimmtudagskvöldið annað en leikur Fylkis og Breiðabliks sem gerði það að verkum að ríflega 2.200 manns mættu í Árbæinn. Bankabókin í Lautinni gildnaði aðeins.

... Valsmenn
Það voru allir léttir í lund fyrir leik en eftir þrettán mínútur var liðið lent 2-0 undir og það endaði með 3-0 tapi gegn nýliðum Leiknis. Leikmenn Vals söfnuðu svo sex þristum í einkunnagjöf Vísis sem gæti verið met og þá tók hamborgarabíll Priksins sem var á staðnum ekki debetkort. Hver gengur með pening á sér árið 2015?
... Richard Arends
Hollenski markvörðurinn fékk á sig mark úr aukaspyrnu á móti Víkingi. Markið var af 40 metra færi. Sævar Júlíusson, markvarðaþjálfari Keflavíkur, hellti sér yfir Hollendinginn beint eftir leik og náðist það á upptöku.
... Áskel Þór Gíslason
Norðanmaðurinn var aðstoðardómari eitt í upphafsleik mótsins á Skaganum og tókst að dæma innkast eftir rangstöðu. Sá fær eflaust að heyra brandara innan dómaraklíkunnar um þessi barnalegu mistök eitthvað fram á næsta áratug.

*Fyrsti útisigur Stjörnunnar í 1. umferð efstu deildar í tæp 25 ár eða síðan í 2-0 sigri á Þór á malarvelli Þórs á Akureyri 19. maí 1990.
*Ólafur Karl Finsen skoraði bæði síðasta mark 2014-tímabilsins og fyrsta mark 2015-tímabilsins en því náði líka Steinar Jóhannsson 1971 og 1972.
*Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, hefur byrjað bæði tímabil sín sem þjálfari í efstu deild á móti ríkjandi Íslandsmeisturum.
*Fjölnir er með fullt hús (12 stig af 12 mögulegum) í fyrsta heimaleik liðsins á úrvalsdeildartímabili.
*Eyjamenn hafa spilað 11 útileiki í röð í 1. umferð í efstu deild án þess að fagna sigri eða alla leiki síðan þeir unnu KA á Akureyri í 1. umferðinni 1991.
*Þetta er í fyrsta sinn sem Víkingar fá þrjú stig fyrir sigur í Keflavík því þegar þeir unnu síðast á Keflavíkurvellinum, 13. ágúst 1983, voru aðeins gefin tvö stig fyrir sigur.
*Ívar Örn Jónsson varð fyrsti Víkingurinn til að skora beint úr aukaspyrnu í efstu deild síðan að Gunnar Kristjánsson skoraði beint úr aukaspyrnu á móti Breiðabliki 26. ágúst 2007.
*Hörður Sveinsson skoraði í sínum þriðja deildarleik í röð á móti Víkingi og öll þrjú mörkin hafa komið frá 35. til 50. mínútu.
*Valsmenn hafa tvisvar mætt félagi í sínum allra fyrsta leik í efstu deild frá árinu 1955 og tapað í bæði skiptin, 1968 á móti ÍBV í Eyjum (3-1) og svo 3-0 á móti Leikni.
*Kolbeinn Kárason hefur skorað 11 af 17 mörkum sínum í efstu deild á Vodafonevellinum.
*FH er eina félagið frá 2008 sem hefur unnið sinn leik í fyrstu umferð eftir að hafa verið spáð titlinum af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum (2013 og 2015).
*KR-ingar hafa aðeins fimm sinnum tapað fyrsta leik sínum á KR-vellinum á 32 tímabilum þar og FH-ingar hafa unnið fjóra þeirra (1995, 2004, 2006 og 2015).
*Fyrstu mörk Atla Guðnasonar í fyrstu umferð í sjö ár eða síðan hann skoraði í 4-0 sigri á HK í 1. umferð 2008.

Henry Birgir Gunnarsson á Fylkisvelli:
„Jóhannes Karl Guðjónsson fékk gult spjald - sá ekki almennilega fyrir hvað enda sólin í andlitinu á manni og rúðan í skítugri kantinum. Hún var samt þrifin fyrir leik en versnaði við það. Stundum betra að þrífa þvegilinn.“
Anton Ingi Leifsson á Fjölnisvelli:
„Það er 12:00 þema hérna í lögunum fyrir leik. Sumartíminn var áðan og nú er það Sama stelpa sem kemur úr hátalarakerfinu. Ég er að fýla þetta, en það eru sjötugir menn fyrir hliðina á mér. Þeir eru á báðum áttum einhvernveginn.“
Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:
Róbert Örn Óskarsson, FH - 8
Halldór Kristinn Halldórsson, Leikni - 8
Óttar Bjarni Guðmundsson, Leikni - 8
Hilmar Árni Halldórsson, Leikni - 8
Ólafur Páll Snorrason, Fjölni - 8
Árni Snær Ólafsson, ÍA - 8
Pablo Punyed, Stjörnunni - 8
Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki - 3
Hákon Ingi Jónsson, Fylki - 3
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki - 3
Arnþór Ari Atlason, Breiðabliki - 3
Ellert Hreinsson, Breiðabliki - 3
Ingvar Þór Kale, Val - 3
Andri Fannar Stefánsson, Val - 3
Þórður Steinar Hreiðarsson, Val - 3
Patrick Pedersen, Val - 3
Sigurður Egill Lárusson, Val - 3
Andri Adolphsson, Val - 3
Gunnar Þorsteinsson, ÍBV - 3
Umræðan #pepsi365
Mættum nokkrum mínútum of seint í Árbæinn og löggan nú þegar mætt að sekta #fyrstiípepsi#pepsi365pic.twitter.com/xPTXBBZMcq
— María Mjöll (@mariamjoll) May 7, 2015
Þétt setið. # Fylkir #fylbre#pepsi365#fotboltinetpic.twitter.com/ErFwIUaAVc
— Frreysi (@freyrg) May 7, 2015
Er ekki hægt að færa #euroVikes - valur á laugardaginn ?? Get ekki beðið fram á sunnudag #pepsi365#fotboltinet
— Halldor I. Sævarsson (@halldoringi) May 5, 2015
Virkilega stoltur af þessari nýjung hjá okkur að vera með lifandi byrjunarlið! #pepsi365#pepsideildin#bestasætiðpic.twitter.com/EFJhOfMUSc
— Ívar Guðmundsson (@ivarnet) May 5, 2015
Bubbi hefði verið til í að vera FH-ingur í kvöld #pepsideildin#pepsi365#fotboltinet#fotbolti
— Pétur Hrafn Friðriks (@Petur_Hrafn) May 5, 2015
Plakkatið oft vanmetið #pepsi365#fjölnir@FjolnisHnefinn
— Björgvin Páll (@Bjorgvin22) May 4, 2015
Vísindaleg rannsókn mín sýnir að 70% marka í 1. umferð pepsi eru skoruð eftir hið séríslenska klafs í teignum #pepsi365#klafsið
— Hörður Unnsteinsson (@hoddiunn) May 4, 2015
Arnar Gunnlágson er svo lang besti punditinn á Íslandi #Pepsi365
— Breki Barkarson (@brekibarka) May 4, 2015