Matarklám er ekki klám í sinni hefðbundnustu mynd tengt við blæti eða beina kynferðislega örvun heldur er meira verið að fagna sykri, fitu og annarri mögulegri óhollustu setta fram á girnilegan og sleförvandi hátt.
Nánast allt er komið með -klám endingu en hún er oft farin að standa fyrir urmul af einhverju eða þá eitthvað syndsamlega yfirdrifið.
Kræsingatímaritið Bon Appetite tók saman á myndrænan hátt góð dæmi um matarklám birtist í samfélagsmiðlum.
Vísir/SkjáskotSvo er hægt að líta t.d. á auglýsingar frá dýraverndunarsamtökunum PETA sem ákveðna útgáfu af matarklámi.
Vísir/SkjáskotEitt tímarit tók þessa pæling ögn lengra og í raun fór með hana allan hringinn með því að blanda saman nektarmyndum af körlum og svo matvöru.
Útkoman er vissulega öðruvísi og minnir jafnvel á unglingsmyndina American Pie þar sem matvöru var beitt á klámfenginn og kynferðislegan hátt.
Reyndar hafa bíómyndir gjarnan gert út á að nota mat sem kynferðislega skírskotun
Vísir/SkjáskotÞetta kann að vera æsandi fyrir suma
Vísir/SkjáskotSkemmtileg notkun á húmor bætir vissulega tímaritið