Innlent

Launaseðlar hjúkrunarfræðinga: „Minn launaseðill endurspeglar á engan hátt þá miklu ábyrgð sem ég axla“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Ingibjörg er í níutíu prósent vinnu.
Ingibjörg er í níutíu prósent vinnu.
„Það má ekkert bregða út af og mistök geta orðið ansi dýrkeypt. Ég get ekki með nokkru móti skilið af hverju minn launaseðill endurspeglar á engan hátt þá miklu ábyrgð sem ég axla og þá 4 ára háskólamenntun sem ég hef lokið til þess að sinna minni vinnu.“

Þetta skrifaði Ingibjörg Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur á dagdeild blóð- og krabbameinslækninga, í Fréttablaðið í dag ásamt því að birta afrit af launaseðili sínum. Hún segir mikilvægt að menntun hjúkrunarfræðinga sé metin til launa, líkt og annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna með sambærilega menntun.

Sjá einnig: Hjúkrunarfræðingar farnir að segja upp

Ella Björg Rögnvaldsdóttir er hjúkrunarfræðingur á hjartadeild. Útborguð laun hennar í júní voru 200.582 krónur fyrir sextíu prósenta kvöldvinnu.mynd/ella
Verkfall hjúkrunarfræðinga hefur staðið yfir í rúmar tvær vikur. Áhrif verkfallsins á íslenska heilbrigðisþjónustu eru mikil og deiluaðilar orðnir langeyðir eftir því að lausn fáist í málið. Viðræðum við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga var slitið í gær, án árangurs. 

„Ef við viljum tryggja heilbrigðiskerfi til framtíðar er algjört grundvallaratriði að halda í mannauðinn. Án hans er spítali ekkert nema auð bygging. Íslendingar eiga vel menntaða hjúkrunarfræðinga sem eru eftirsóknarverðir í öllum heiminum,“ skrifar Ingibjörg.

Fleiri hjúkrunarfræðingar hafa birt launaseðla sína opinberlega í dag. Þar á meðal Ella Björg Rögnvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur á hjartadeild Landspítalans. Útborguð laun hennar í júní voru 200.582 krónur fyrir 60 prósent vinnu á kvöldin. Grunnlaun hennar eru 311.920 krónur.

Erla Hlíf Kvaran er á sömu launum og Ella Björg. Hún segist ekki myndu geta náð endum saman væri hún einstæð móðir og þykir það miður að hafa þurft að horfa upp á samstarfsfélaga sína flytja úr landi í leit að eðlilegra og betra lífi.


Tengdar fréttir

Hjúkrunarfræðingar farnir að segja upp

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir þetta áhyggjuefni og óttast þau áhrif sem lagasetning á verkfall þeirra getur haft.

Trúir á lýðréttindi þótt lagasetning beri á góma

Kjaraviðræður ríkisins og Bandalags háskólamann eru í algjörum hnút. Formaður samninganefndar BHM segir viðræðurnar síðustu daga hafa verið undir hótunum um lagasetningu sem virðist nú yfirvofandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×