Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðið um nýja neyðarhjálp fyrir Grikkland til tveggja ára. Samkvæmt beiðninni kæmi hjálpin frá Stöðugleikaráði ESB. Einungis nokkrar klukkustundir eru í að Grikkland fari í vanskil á láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Grikkland sitji enn við samningaborðið. Frekari upplýsingar um hvað nýja tilboðið felur í sér liggja ekki fyrir.
Angela Merkal sagði hinsvegar í dag að hún væri ekki vongóð um að deiluaðilar myndu komast að samkomulagi í dag. Það fer þvert á það sem hún sagði fyrr í dag um að enn væri tími til viðræðna. Þar að auki sagði hún við þingmenn í Þýskalandi að afleiðingar efnahagskrísu Grikklands ætti ekki að hafa mikil áhrif á evrusvæðið í heild sinni.
Embættismenn ESB segja að renni núverandi neyðaráætlun út klukkan tíu í kvöld, muni Grikki tapa aðgangi að rúmum 16 milljörðum evra í fjárhagsaðstoð. Grikkir gætu farið fram á annars konar aðstoð en það ferli myndi taka tíma sem Grikkir hafa ekki.
Grikkir biðja um nýja neyðarhjálp

Tengdar fréttir

Mikill órói á fjármálamörkuðum vegna ástandsins í Grikklandi
Bankar í landinu verða lokaðir til 7. júlí.

Tsipras hvetur þjóð sína til að segja nei
Ýjaði að því að ef tilboð lánadrottna yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þá segði hann af sér embætti.

Segir enn svigrúm til viðræðna
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir að engin skref hafi verið stigin í deilu Grikklands og kröfuhafa þeirra.

Hvaða þýðingu hefur útganga Grikkja úr myntsamstarfinu?
Grikkir eru á barmi gjaldþrots og útgöngu úr evrusamstarfinu. Hefur það einhverja þýðingu fyrir Ísland og hvað gerist ef þeir hætta í myntsamstarfinu?

Juncker bauð Grikkjum upp á neyðarfund í dag
Ef Grikkir greiða ekki afborgun á láni sínu hjá AGS fyrir miðnætti yrði það í fyrsta skipti sem þróað lýðræðisríki stendur ekki í skilum við sjóðinn.