Myndbandsins hefur verið beðið með eftirvæntingu allt frá því að auglýsing fyrir áheyrnaprufur fyrir það vakti upp ótalmargar spurningar í apríl. Þá voru uppi vangaveltur um að auglýsingin væri ekki raunveruleg.
Samkvæmt auglýsingunni átti myndbandið að innihalda þrjár mismunandi senur þar sem Drake er í aðalhlutverki; ein vandræðaleg fjölskyldumynd af fjölskyldu rapparans, skot af bæjarstjóranum Drake Ford sem sést á bílaplani ásamt eiturlyfjasala og síðast en ekki síst senan „Fyrirsætan Drake“ þar sem andlit hans er sett á líkama fyrirsætu. Því var kallað eftir tvífara Robs Ford í prufur, búttuðum börnum í vandræðalegu fjölskyldumyndina auk fjölda aukaleikara í prufur.
Nú, eftir að myndbandið kom út, skilst þessi auglýsing betur. Myndbandið er skemmtilegt og forvitnilegt en það hefur fengið góðar viðtökur vestanhafs af fjölmiðlaumfjöllun að dæma. Vefútgáfa Cosmopolitan segir það „klikkaðslega yndislegt“ og „það besta sem þú munt nokkurn tímann sjá.“ Pitchfork sagði það „ótrúlegt“.