Dýragarðurinn í Tíblisi, höfuðborg Georgíu, opnaði í gær eftir að hafa verið lokaður frá því í júní. Mikil flóð stórskemmdu dýragarðinn fyrir þremur mánuðum og dýr bæði sluppu og drápust. Þá fórust einnig nítján Georgíumenn í flóðunum.
„Eftir þriggja mánaða uppbyggingu getum við loks opnað á ný þrátt fyrir að hafa misst 277 dýr,“ segir Zurab Guerelidze, forstöðumaður dýragarðsins. Til að aðstoða Georgíumenn við að ná sér á strik aftur gáfu aðrir evrópskir dýragarðar þeim um 150 dýr.
Einhver dýranna drápust í flóðunum en stærstum hluta var smalað inn í skýli fyrir flækingshunda og slátrað.
Georgíska ríkisstjórnin hefur sætt mikilli gagnrýni í kjölfar flóðanna. Enn er margra saknað og tugir eru heimilislausir. Þá eru vegir enn stórskemmdir í borginni. Auk þess vakti sú ákvörðun að slátra dýrum garðsins ekki hrifningu margra Georgíumanna.
Dýragarðurinn opnaður á ný

Tengdar fréttir

Tígrísdýr banaði manni í Tbilisi
Slapp úr dýragarði borgarinnar í flóðinu um helgina.

Dýr ganga laus um götur höfuðborgar Georgíu
Ljón, Tígrisdýr, flóðhestur og fleiri dýr sluppur úr dýragarði eftir mikil flóð.