Erlent

Lýsir yfir ein­hliða vopna­hléi vegna sigur­hátíðar í næstu viku

Kjartan Kjartansson skrifar
Slökkviliðsmaður dæli vatni á rústir íbúðarhúss eftir loftárás Rússa í Donetsk-héraði í Austur-Úkraínu í morgun.
Slökkviliðsmaður dæli vatni á rústir íbúðarhúss eftir loftárás Rússa í Donetsk-héraði í Austur-Úkraínu í morgun. AP/neyðarþjónusta Úkraínu

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagðist ætla að lýsa yfir einhliða vopnahléi í Úkraínu í þrjá sólarhringa í næstu viku þegar Rússar fagna því að áttatíu ár eru liðin frá sigri á nasistum í síðari heimsstyrjöldinni. Úkraínumenn gefa lítið fyrir yfirlýsingar forsetans.

Sigurdagurinn 10. maí er stærsti hátíðardagur Rússa fyrir utan trúarlega helgidaga. Þá fagna þeir sigri á Þýskalandi nasismans árið 1945. Pútín hefur boðið erlendum fyrirmennum til hátíðarhalda til að fagna með honum í Moskvu í næstu viku.

Vopnahléið sem hann lýsti yfir á að vara frá klukkan 21:00 7. maí til 21:00 9. maí, að sögn AP-fréttastofunnar. Það ætti að vera á „mannúðarforsendum“. Úkraínumenn ættu að einnig að leggja niður vopn á meðan.

Úkraínumenn, minnugir þess að Rússar héldu árásum sínum áfram þrátt fyrir meint páskavopnahlé Pútíns, segja yfirlýsingar Pútín nú aðeins sýndarmennsku. Ef Rússum væri alvara með frið þá þyrfti vopnahléð að taka gildi strax.

„Hvers vegna að bíða til 8. maí? Ef við getum slíðrað vopnin núna frá hvaða degi sem er og í þrjátíu daga, þannig að það sé raunverulegt og ekki bara fyrir skrúðgöngu,“ sagði Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.

Pútín hefur til þessa hafnað kröfum Úkraínumanna um lengra vopnahlé. Hann hefur viljað að á meðan yrðu vopnasendingar vestrænna ríkja til Úkraínu stöðvaðar og Úkraínumönnum bannað að halda áfram liðssöfnun í herinn.


Tengdar fréttir

Segir Pútin ekki vilja enda stríðið

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir Vladimír Pútín, forseta Rússland, ekki vilja ljúka stríðinu sem hófst með innrás Rússa inn í Úkraínu. Trump sakar Pútín um að draga sig á asnaeyrunum

Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa

Umtalsverður munur er á tillögum Bandaríkjastjórnar annars vegar og Evrópuríkja og Úkraínu hins vegar að friðarsamkomulagi við Rússland. Tillögur Bandaríkjastjórnar virðast láta meira undan Rússum og vera óljósari um tryggingar fyrir vörnum Úkraínu og hver skuli bæta tjón landsins af innrásinni.

Vilja ræða frið en ekki uppgjöf

Úkraínumenn segjast ekki ætla að ræða það að gefa landsvæði eftir fyrir frið fyrr en eftir að búið verði að koma á almennu vopnahléi. Þetta gerðu úkraínskir erindrekar Bandaríkjamönnum ljóst í gær og leiddi það til þess að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, hættu við að mæta á viðræðufund í Lundúnum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×