Mikill fjöldi Sýrlendinga, sem flúði sprengingar og efnavopnaárásir í heimalandi sínu, býr nú við litlu skárri lífsskilyrði í Jórdaníu og Líbanon. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna varaði í gær við því að flóttamennirnir íhugi nú að snúa aftur til síns stríðshrjáða heimalands þar sem þeir sjái enga framtíð í Jórdaníu og Líbanon.
Þeir flóttamenn sem þar eru þurfa margir hverjir að lifa á andvirði um fimmtíu króna á dag og eiga margir hverjir ekki þak yfir höfuðið.
Fréttastofa The Guardian greinir frá því að sjálfboðaliðar segi mörg dæmi um ung börn sem labba um göturnar og reyna að selja blóm eða pússa skó til að bæta hag fjölskyldu sinnar. Börnin eru svo áreitt af ölvuðu fólki á götum úti á næturnar þar sem þau þurfa oft að sofa.
„Flóttamenn hér segja okkur að þeir vilji frekar fara heim til Sýrlands, í miðja borgarastyrjöld. Fólk þarf að hafa náð botninum að öllu leyti til að taka slíka ákvörðun,“ sagði Dina El-Kassaby, talskona Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.
Melissa Fleming, talskona Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir slæma stöðu í nágrannaríkjunum helstu ástæðu fyrir því að æ fleiri Sýrlendingar flýi til Evrópu. „Á meðan ekki fæst fjármagn til að styrkja innviði þessara landa mun fólk halda áfram að flykkjast til Evrópu.“
BBC birti í gær myndband sem sýnir fórnarlömb efnavopnaárása. Myndbandið dregur upp óhugnanlega mynd af lífinu í Sýrlandi, sem hópar flóttamanna í Líbanon og Jórdaníu telja þó skárra en lífið í nágrannaríkjunum.
„Það er virkilega sársaukafullt að horfa á myndbandið. Foreldrar bera föla, blauta og hreyfingarlausa líkama barna sinna inn á spítala á meðan læknar reyna að bjarga lífi þeirra. Menn kúgast og æla á meðan amma barnanna liggur friðsæl á bekk, látin,“ segir í lýsingu BBC á myndbandinu, sem var tekið upp í kjölfar efnavopnaárásar.
Fréttastofa BBC hefur eftir heimildarmanni sínum, efnavopnasérfræðingi, að allt bendi til þess að sinnepsgas hafi verið notað í árásum Íslamska ríkisins.
Þá hefur herlið ríkisstjórnar Bashars al-Assads einnig verið sakað um að hafa beitt efnavopnum sem innihalda klór.
Aðstæður flóttafólks eru ómannúðlegar

Tengdar fréttir

Gleðst yfir vilja þjóðarinnar til að hjálpa flóttamönnum
Yfir tíu þúsund Íslendingar hafa tekið sig saman og boðið fram aðstoð sína til flóttamanna frá Sýrlandi undir yfirskriftinni "Kæra Eygló Harðar – Sýrland kallar“ á Facebook.

Íslendingar bregðast við kalli Eyglóar: „Flóttamenn eru mannauður, reynsla og hæfileikar“
"Fólk sem við eigum aldrei eftir að geta sagt við í framtíðinni: "Þitt líf er minna virði en mitt líf.“ En af hverju látum við samt eins og svo sé?“ segir í viðburðinum.

„Kæra Eygló - Sýrland kallar“ ratar í miðla í Bretlandi, Pakistan og Malasíu
Framtak Bryndísar Björgvinsdóttur hefur ekki aðeins vakið mikla athygli hér heima heldur er nú farið að fjalla um það í fjölmiðlum erlendis.