Sektaður fyrir að heiðra minningu föður síns Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. október 2015 12:15 Heyward í leik með Steelers. vísir/getty
NFL-deildin er undirlögð af bleiku allan þennan mánuð til að styðja við baráttuna gegn krabbameini. Það skýtur því nokkuð skökku við að leikmenn deildarinnar fái ekki að styðja foreldra sína sem hafa þurft að glíma við þennan illvíga sjúkdóm. Það fékk varnarmaður Pittsburgh Steelers, Cameron Heyward, að reyna í gær er hann var sektaður fyrir að heiðra minningu föður síns sem lést úr krabbameini. Leikmenn í NFL-deildinni eru oftar en ekki með svarta stríðsmálningu undir augunum í leikjum. Ofan í sína málningu hafði Heyward skrifað „Iron Head" til að heiðra föður sinn sem var leikmaður í deildinni til ellefu ára. Hann lést árið 2006. NFL hafði engan skilning á því og sektaði leikmanninn um 720 þúsund krónur. NFL meinar leikmönnum að koma persónulegum skilaboðum á framfæri á vellinum og veita augljóslega engar undantekningar. Heyward hefur áfrýjað þessum úrskurði deildarinnar.
NFL Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Enski boltinn Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Fótbolti Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti Fleiri fréttir Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Komin átta mánuði á leið en kláraði fimm kílómetra á tuttugu mínútum Falko áfram í Breiðholtinu Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Ronaldo „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Stemmningin í húsinu hjálpar“ „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Höfðu betur eftir framlengdan leik Sjá meira